Þorskstofninn ekki stærri í tugi ára

Ekki hefur mælst meira af þorski á Íslandsmiðum síðan 1985. Forstjóri Hafrannsóknarstofnunar segir þetta mjög ánægjulegar fréttir, og að aflamark verði hækkað á næsta ári. Stofnvísitala þorsks á Íslandsmiðum hefur hækkað fimm ár í röð. Vísitalan hefur ekki verið hærri síðan 1985.
Hafrannsóknarstofnun kynnti í morgun niðurstöður úr stofnmælingu botnfiska á Íslandsmiðum sem fram fór í mars. Þar kemur fram að ástand þorskstofnsins heldur áfram að batna. Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar segir greinilegt að aðhaldsaðgerðir í veiðum hafi skilað sér: „Þetta er náttúrulega árangur af aðgerðum stjórnvalda á síðastliðnum árum sem eru að skila sér í sterkari og stærri stofni, stærri fiski og það sem við erum náttúrulega líka ánægð með varðandi þorskinn er að hann er almennt vel á sig kominn og hefur nægt æti,“ segir Jóhann.
Hann segir að aðgerðir þar sem dregið var úr veiðiálagi á þorski frá árinu 2007 hafi greinilega skilað árangri. En þýðir þetta að hægt sé að veiða meira af þorski? „Það er náttúrulega borðleggjandi að þessar niðurstöður benda til þess að það verði aukning á aflamarki á næsta fiskveiðiári,“segir Jóhann. Hann leggur þó áherslu á að enn eigi eftir fara út í frekari rannsóknir á stofninum, þótt greinilegt sé að hann sé á réttri leið: „Að sjálfsögðu eru þetta mjög jákvæðar fréttir og sýna bara hvað aðhaldssamar aðgerðir í stjórnun fiskveiða geta skilað miklum og mikilvægum árangri,“ segir Jóhann.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













