Tæplega 30.000 skorað á forsetann
Fyrst birt: 14.02.2012 16:46, Síðast uppfært: 04.04.2012 16:27

Tæplega þrjátíu þúsund hafa skráð sig á síðu til að skora á Ólaf Ragnar Grímsson að gefa áfram kost á sér til embættis forseta. Formlegri undirskriftasöfnun lýkur í dag.
Þegar söfnuninni var hleypt af stokkunum sögðust forsvararsmenn hennar vona að ef fjörutíu þúsund manns myndu skora á Ólaf Ragnar yrði hann við þeim óskum. Mögulegt er að skrá tilbúin nöfn og kennitölur á síðuna en forsvarsmaður hennar, Baldur Óskarsson, segir að á fimmtudag hefjist vinna við að grisja út falskar undirskriftir. Undirskriftirnar verði síðan afhentar forseta eftir helgi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is









