Segja ráðherra brjóta stjórnarskrá



  • Prenta
  • Senda frétt

Þingmenn stjórnarandstöðunnar á Alþingi segja Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra vísvitandi brjóta stjórnarskrá og að hún eigi að segja af sér. Hún leggi fram þingsályktunartillögu um breytingar á stjórnarráðinu, sem hún sjálf segi ekki standast stjórnarskrána.

Einar K Guðfinnsson þingmaður sjálfstæðisflokks gagnrýndi Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra harðlega á þingi í dag. Hann vitnaði til orða Jóhönnu þegar rætt var um þingsályktunartillögu um breytingar á skipan ráðuneyta. Þar sagði hún að tillöguna fela það eitt í sér að Alþingi styddi fyrirhugaðar breytingar á fjölda og heita ráðuneyta. Það væri í raun í andstöðu við 15 gr. stjórnarskrárinnar sem kvæði á um að forseti skipaði ráðherra og skipti með þeim störfum.

  „Hæstvirtum ráðherra bæri auðvitað, ef hún vildi að leggja fram frumvarp til þess að breyta þessu, þannig að þingmálið væri í samræmi við stjórnarskrána. Það er ekki gert. Hæstvirtur forsætisráðherra fer hér fram með mál sem hún sjálf segir að sé brot á Stjórnarskrá Íslands,“ sagði Einar. 

 Þingmenn Samfylkingar tóku ekki til máls en Árni Þór Sigurðsson, Vinstri hreyfingunni- grænu vinstri grænum svaraði einn stjórnarliða.  Hann minnti á að þingmálið væri ekki frumvarp til laga.

 „Það er þingsályktunartillaga,  tillaga um að Alþingi lýsi yfir ákveðinni afstöðu eða stuðningi við fyrirætlanir forsætisráðherra varðandi skipan stjórnarráðsins. Það getur  auðvitað ekki verið í bága við stjórnarskrána eins og ég skil það.,“ sagði Árni Þór.

Árni sagðist ekki sjá neitt því til fyrirstöðu að þingið lýsti afstöðu sinni til þess. En það mætti vissulega velta því fyrir sér hvort eðlilegt væri að skipan stjórnaráðsins, fjöldi og skipan ráðuneyta kæmi til kasta þingsins .

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku