Óeðlileg hlutabréfakaup í Straumi

Nefnd sem fór í saumana á starfsemi lífeyrissjóðanna árin fyrir hrun. Hrafn Bragason er lengst til hægri.
Kaup Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins á bréfum í Straumi, í kjölfar boðsferðar sem tveir starfsmenn sjóðsins þáðu, eru óeðlilegt að mati Hrafns Bragasonar, formanns úttektarnefndar Landsssambands Lífeyrissjóða.
Hrafn var gestur Kastljóssins í kvöld þar sem hann var spurður að því hvers vegna ekki hefði verið fjallað meira um boðsferðir til handa starfsmönnum lífeyrissjóðanna í nýútkominni skýrslu nefndarinnar. En viðskipti í kjölfar slíkra ferða þyki í sumum tilfellum undarleg. Dæmi var nefnt um tvo starfsmenn Lífeyrissjóðs starfsmana ríkisins sem þáðu tveggja daga ferð á vegum Straums í september 2008. Skömmu eftir að þeir komu heim skiptu þeir á bréfum í stóru bönkunum fyrir bréf í Straumi fyrir hátt í 800 milljónir króna.
Hrafn svaraði að það hljómaði auðvitað ekki vel að viðskiptin hafi farið fram svona skömmu eftir ferðina. En á það sé að líta að lífeyrissjóðirnir hafi almennt fjárfest í Straumi á þessum árum. Spurður um hvort ekki sé eitthvað óeðlilegt á ferð, þótt ekki sé notað orðið mútur, svarar Hrafn: „Ég er þér alveg sammála um það að þetta er óeðlilegt og sjóðurinn hefði átt að hafa þær reglur að þeir greiddu þetta sjálfir.“
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







