Líkamsárás í Reykjanesbæ

Maður er í haldi lögreglu á Suðurnesjum eftir að hafa ráðist á þrjá menn með barefli á úti á götu. Mennirnir létu gera að sárum sínum á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Erill var hjá lögreglu á Suðurnesjum í nótt vegna drykkjuskapar á skemmtistöðum.

Tveir aðrir eru í haldi lögreglunnar. Annar vegna þess að hann reyndi að stinga leigubílstjóra af eftir að hafa neitað að borga fyrir akstur. Hinn situr inni vegna ölvunaraksturs.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku