Gróður og byggð draga úr vindum
Fyrst birt: 05.12.2011 11:39, Síðast uppfært: 06.12.2011 08:45

Það getur orðið ansi hvasst við Esjurætur. Aukinn gróður gæti dregið úr vindhraðanum þar.
Stormtíðni á Keflavíkurflugvelli annarsvegar og Veðurstofu Íslands við Bústaðaveg hinsvegar fylgdist lengi vel að. En um 1980 fer að draga í sundur og eftir árið 2000 mælast varla stormar í Reykjavík.
Haraldur Ólafsson segir niðurstöðu mælinganna verði eingöngu skýrðar með aukinni byggð og gróðri suðvestan og suðaustan við Veðurstofuna. Í framhaldi af þessu forvitnaðist Landinn um þann sérstaka norðanvind sem steypist niður Esjuhlíðar og verður oft gríðarhvass á láglendi. Margt bendir til þess að áhrif skógræktar í Esjuhlíðum gætu verið mjög mikil á þessa tegund vinda.
Vertu vinur Landans á Facebook.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







