Forseti Alþingis svarar gagnrýni

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir.
Ályktun ungra jafnaðarmanna um vantraust á forseta Alþingis er byggð á misskilningi. Þetta segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. Hún segir þingmenn verða að sætta sig við lýðræðislega niðurstöðu Alþingis.
Ungir jafnaðarmenn hafa ályktað og lýst vantrausti á störf forseta Alþingis, Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, vegna þess hvernig hún tók á tillögu Bjarna Benediktssonar um að fella skuli niður landsdómsmálið gegn Geir Haarde. Hún setti málið á dagskrá og greiddi svo atkvæði gegn frávísunartillögu. Með því vilja ungir jafnaðarmenn meina að hún hafi tekið afstöðu gegn sjálfstæði dómstóla.
Óánægja innan þingflokks
Óánægja í garð Ástu hefur líka komið fram innan þingflokks Samfylkingarinnar - Mörður Árnason hefur meðal annars lýst því yfir að hann vilji að kosið verði aftur í embætti þingforseta.
Ásta Ragnheiður segir að sem forseti allra þingmanna Alþingis, ekki bara stjórnarmeirihlutans, hafi henni borið að setja tillögu Bjarna Benediktssonar á dagskrá. Hún hafi fengið álit lögfræðinga á því hvort málið væri þingtækt eða ekki. Ályktun ungra jafnaðarmanna segir hún byggða á misskilningi.
„Mér finnst nú þessi ályktun byggð á misskilningi, ég er þingmaður, eins og aðrir hér inni og tek afstöðu í málum samkvæmt minni sannfæringu. Ég undirritaði eiðstaf um það,“ sagði Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir í viðtali við fréttastofu RÚV.
Á rétt á að greiða atkvæði
Ásta Ragnheiður segist reyna, sem þingforseti, að halda trúnað við alla flokka og því haldi hún sig til hlés frá pólitískum skoðanaskiptum.
„En ég á rétt á því að greiða hér atkvæði og ég er algjörlega samkvæmt sjálfri mér í þeim efnum því ég hef áður greitt atkvæði um þetta mál. Þarna var ég nú bara að greiða atkvæði um að málið fengi framgang í þinginu og ég hef nú talið það skyldu mína sem þingforseta að mál geti fengið að minnsta kosti þann framgang að fara til nefndar,“ sagði Ásta Ragnheiður.
En hvað finnst henni um óánægju í sinn garð innan þingflokks Samfylkingarinnar?
„Þetta er lýðræðisleg niðurstaða og menn verða að sætta sig við það,“ Sagði Ásta Ragnheiður að lokum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







