Færð klukkan 9

Hálka og éljagangur er á Sandskeiði og Þrengslum en snjóþekja og él á Hellisheiði. Flestar aðalleiðir á Suðurlandi eru færar en víða þungfært á sveitavegum.

Enn er ófært á Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði en unnið er að hreinsun. Hálka er á Reykjanesbraut og á Suðurnesjum. Á Vatnsleysuströnd er þæfingur en unnið er að hreinsun. Ófært er á Suðurstrandavegi. Á Vesturlandi er víðast hvar hálka. Ófært er á Útnesvegi, í Álftafirði og á Laxárdalsheiði. Á Vestfjörðum er ófært frá Vatnsfirði og austur yfir Klettsháls en unnið er að hreinsun. Í Djúpinu er þæfingsfærð og aðeins fært á fjórhjóladrifsbílum en áfram er unnið að hreinsun. Þæfingsfærð er einnig í Súgandafirði og unnið er að hreinsun. Flughált er í Bæjarhreppi. Á Norðurlandi er víðast hvar hálka eða snjóþekja. Siglufjarðarvegur er ófær. Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Austurlandi og Suðausturlandi.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Veður

Tilkynna um bilaða upptöku