Bannar dreifingu á áburði

Matvælastofnun segir að dreifing á áburði sem Skeljungur flytur inn verði ekki heimiluð fyrr en efnagreining sýni að varan standist kröfur, þar á meðal um kadmíum innihald.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem stofnunin birti á heimasíðu sinni í dag. Síðasta vor var ákveðið að leyfa dreifingu á áburðinum, þótt mælingar hefðu sýnt of mikið af kadmíum í áburðinum. Matvælastofnun segir að á undanförnum árum hafi kadmíum í áburði frá Skeljungi verið langt undir mörkum og oftast ekki í mælanlegu magni. Því hafi afhending og sala á áburðinum verið heimiluð síðasta vor, á meðan á sýnatöku og efnagreiningu stóð. Í ljósi þess að einstakt tilvik hafi verið að ræða, ekki bráða hættu, og að áburðurinn var að verulegu leyti farinn í dreifingu, hafi verið tekin sú ákvörðun að krefjast ekki innköllunnar. Þetta var gert, jafnvel þó innihald kadmíums í áburðinum hafi í sumum tilvikum verið hátt í þrefald það sem leyft er hér á landi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Alltof mikið kadmíum í áburði
Dreifði 850 tonnum af áburðinum





