80 cm snjór á Ólafsfirði
Fyrst birt: 26.01.2012 17:50, Síðast uppfært: 26.01.2012 19:02

Heimamenn á Ólafsfirði og Siglufirði hafa ekki séð meiri snjó í 10 ár en á Ólafsfirði mældist í dag 80 cm jafnfallinn snjór. Snjóflóðaeftirlitsmenn hafa verið á vakt í allan dag en mikill snjór hefur þjappast saman í fjöllum á Tröllaskaga.
Frá því síðdegis í gær komust íbúar Fjallabyggðar ekki landleiðina úr sveitarfélaginu í nærri sólarhring vegna snjóflóðahættu á veginum um Ólafsfjarðarmúla og á Siglufjarðarvegi. Almannavarnir hafa nú aflýst óvissustigi og var vegurinn um Ólafsfjarðarmúla opnaður eftir hádegi í dag. Siglufjarðarvegur norðan Siglufjarðar er hinsvegar enn lokaður og verður ekki mokað fyrr en í birtingu á morgun.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







