Óðurinn til gleðinnar
Sinfónía nr. 9 eftir Ludwig van Beethoven í hljóðritun frá 30 ára afmælistónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Hofi á Akureyri, 29. október s.l.
Með hljómsveitinni koma fram einsöngvararnir Herdís Anna Jónasdóttir, Hildigunnur Einarsdóttir, Gunnar Björn Jónsson og Oddur Arnþór Jónsson auk Kórs Akureyrarkirkju og Mótettukórsins; Bjarni Frímann Bjarnason stjórnar.
Á tónleikunum var sungin íslensk þýðing Matthíasar Jochumssonar á ljóði Friedrich Schillers, An die Freude.