
Meira en bara leikur
Sigur íslenska kvennalandsliðsins í handbolta á Norðurlandamótinu utanhúss sem haldið var á Laugardalsvelli árið 1964 er stór titill í íslenskri íþróttasögu og mótið er merkilegt fyrir margra hluta sakir. Í dag þætti ekki merkilegt að íslenskt lið yrði Norðurlandameistari, en á þessum tíma var veruleikinn allt annar. Ísland tefldi fram kvennalandsliði í handbolta fyrst árið 1956 en ár og áratugir liðu þar til íslensk kvennalandslið spiluðu landsleiki í körfubolta og fótbolta. En hvers vegna skyldi handboltinn hafa verið opnari fyrir konur en margar aðrar íþróttagreinar á þessum tíma, um miðja síðustu öld? Um þetta er fjallað í þættinum Meira en bara leikur.
Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson