Í Davíðshúsi við Bjarkarstíg

Reynt er bregða upp mynd af því hvaða mann skáldið Davíð Stefánsson hafði geyma. Sjónarhornið er hús skáldsins við Bjarkarstíg 6 á Akureyri, hús sem Davíð lét reisa og hann flutti í árið 1944. Flutt eru brot úr ávarpi sem Davíð flutti í Ríkisútvarpið 17. júní 1942, eins konar herhvöt til þjóðarinnar líta hátt og fram á veginn, ekki leggjast undir erlent vald eða áhrif heldur klífa tindinn í hverju því sem fyrir höndum bæri. Rætt er við fólk sem man eftir Davíð og kom í Davíðshús meðan skáldið lifði, bróðurbörn hans tvö, Ragnheiði [1936-] og Magnús Stefánsbörn úr Fagraskógi, en einnig Þorbjörgu Guðmundsdóttur sem ólst hluta upp í kjallaraíbúð Davíðshúss og Jódísi Jósefsdóttur sem starfaði á Amtsbókasafninu á Akureyri og sentist stundum til Davíðs með bækur. Tónlistin í þættinum er öll flutt við ljóð eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.

Umsjón: Pétur Halldórsson.

(Áður á dagskrá 2011)

Frumflutt

25. des. 2011

Aðgengilegt til

18. júní 2025
Í Davíðshúsi við Bjarkarstíg

Í Davíðshúsi við Bjarkarstíg

Þátturinn er helgaður Davíð Stefánssyni frá Fagraskógi. Einkum er reynt bregða upp mynd af því hvaða mann skáldið hafði geyma. Sjónarhornið er hús skáldsins við Bjarkarstíg 6 á Akureyri, hús sem Davíð lét reisa og hann flutti í árið 1944. Flutt eru brot úr ávarpi sem Davíð flutti í Ríkisútvarpið 17. júní 1942, eins konar herhvöt til þjóðarinnar líta hátt og fram á veginn, ekki leggjast undir erlent vald eða áhrif heldur klífa tindinn í hverju því sem fyrir höndum bæri. Rætt er við fólk sem man eftir Davíð og kom í Davíðshús meðan skáldið lifði, bróðurbörn hans tvö, Ragnheiði og Magnús Stefánsbörn úr Fagraskógi, en einnig Þorbjörgu Guðmundsdóttur sem ólst hluta upp í kjallaraíbúð Davíðshúss og Jódísi Jósefsdóttur sem starfaði á Amtsbókasafninu á Akureyri og sentist stundum til Davíðs með bækur. Tónlistin í þættinum er öll við ljóð eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.

,