Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Þór Hauksson flytur.
Í þættinum verður ferðast á fáfarnar en áhugaverðar slóðir vítt og breitt um veröldina. Saga hvers staðar verður rakin og tónlist tengd honum leikin. Í hverjum þætti verður rætt við fólk sem hefur ferðast um viðkomandi land og það segir frá þeim áhrifum sem það varð fyrir af náttúru og menningu. Netfang þáttarins: <a href="mailto:[email protected]">[email protected]</a>
Umsjón Magnús R. Einarsson. Þættirnir eru einnig á Hlaðvarpi Rúv <a href="http://www.ruv.is/podcast"> HLAÐVARP RÚV</a>
Þórólfur Árnason segir frá kynnum sínum af Rússlandi og Rússum, en hann fór margar vinnuferðir á vegum Marels til Kamsjatka bæði fyrir og eftir hrun kommúnismans.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Þegar gömul nýárskort eru skoðuð má sjá á þeim ýmis konar tákn. Fjögurra laufa smári, berserkjasveppur, sótari, maríubjalla, svín og skeifa eru meðal þess sem oft sést á nýárskortum. Í þættinum verður búið til nýárskort í tónum, litið verður á táknin á gömlum nýárskortum, fjallað um merkingu þeirra og leikin tónlist sem tengist þeim. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Þórhildur Ólafsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Ódysseifur, Eyðilandið og þriðji áratugurinn í bókmenntum.
Á þessu ári er öld liðin síðan tvö af helstu verkum módernismans komu út, Ulysses eða Ódysseifur eftir írska rithöfundinn James Joyce og Wasteland eða Eyðilandið eftir bandarísk-breska skáldið T.S. Eliot. Í þessari fimm þátta röð er ætlunin að varpa ljósi á þessi verk, áhrif þeirra en ekki síður tímann sem þau eru sprottin úr, menningarlegt og fagurfræðilegt umhverfi þeirra og sömuleiðis samfélagslegar og sögulegar aðstæður skömmu eftir lok fyrri heimsstyrjaldar á þriðja áratugnum.
Umsjón: Ástráður Eysteinsson og Þröstur Helgason.
Hvað er það við Ódysseif eftir Joyce og Eyðilandið eftir Eliot sem veitir þeim þá stöðu í bókmenntasögunni að vera grundvallarrit módernismans. Í þættinum er dregin upp mynd af menningarlegu og sögulegu samhengi þessara verka. Rætt er hvað var að gerast í bókmenntum annarra málssvæða í Evrópu á þriðja áratugnum og meðal annars minnst á rithöfundana Kafka, Proust, Virginiu Woolf og Thomas Mann. Og hvað var að gerast í íslensku bókmenntalífi á þessum árum? Viðmælandi í þættinum er Guðmundur Hálfdánarson.
Umsjón: Ástráður Eysteinsson og Þröstur Helgason.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Orðanna origami á Rás 1. Hugað að öllu mögulegu á sviði bókmenntanna.
í þessum fyrsta þætti Orða um bækur á nýju ári er litið um öxl og rifjuð upp fyrstu kynni af nýjum ljóðröddum. Fluttir bútar úr viðtal við Natöshu S. um ljóðabókina Máltaka á stríðstímum. Einnig brot úr vitali við ljóðskáldin Sunnu Dís Másdóttur og Jakub Stachiowich um ljóðabækurnar Plómur eftir Sunnu og Úti bíður skáldleg veröld eftir Jakub. Þá er hugað að skáldverkum þar sem höfundar sækja efnivið í eigin líf. Flutt brot úr samtali Önnu Maríu Björnsdóttur við þær Auði Jónsdóttur, Evu Rún Snorradóttur og Fríðu Íslberg um það hvort afstaða til slíkra bókmennta fari eftir því hvort höfundur er karl eða kona. Að lokum er rifjuð upp heimsókn í Bókasamlagið sem þá var nýstofnað og ætlaði sér stóra hluti í öllu mögulegu viðkomandi bókum þar sem rætt var við forsvarskonurnar Danýju Maggýardóttur og Kikku KM Sigurðardóttur einnig flutt nýtt viðtal við Kikku KM um hvernig tókst til á síðasta ári og hvernig Bókasamlagið fer inn í nýtt ár.
Umsjón Jórunn Sigurðardóttir
Guðsþjónusta.
Séra Jón Ómar Gunnarsson og Séra Pétur Ragnhildarson þjóna fyrir altari.
Predikun: Séra Jón Ómar Gunnarsson.
Orgelleikari og kórstjóri: Arnhildur Valgarsdóttir.
Kór Fella- og Hólakirkju syngur.
Einsöngur: Xu Wen.
Matthías Stefánsson leikur á fiðlu.
Fyrir predikun:
Forspil: Greensleaves, enskt þjóðlag, leikið á fiðlu og orgel.
Sálmur 67a: Fögur er foldin. Þjóðlag frá Schlesíu, útsett af Andrési Öhrwall. Íslenskur texti: Matthías Jochumsson.
Hvað boðar nýárs blessuð sól? Lag: Christoph E. F Weyse Íslenskur texti: Matthías Jochumsson.
Sálmur 61: Ó, hve dýrðleg er að sjá. Danskt lag. Texti: Nicolaj F. S. Grundtvig. Íslensk þýðing: Stefán Thorarensen.
Eftir predikun:
Alleluia, úr Exultate Jubilate eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Xu Wen syngur einsöng, með henni leika Arnhildur Valgarðsdóttir á píanó og Matthías Stefánsson á fiðlu.
Sálmur 82: Hjartað bæði og húsið mitt. Þýskt lag frá því um 1500. Texti: Hallgrímur Pétursson.
Eftirspil: Söngur Gabríellu Stefan Nilsson.
Hádegisútvarp í umsjón þular.
Íslenskt lag eða tónverk.
Útvarpsfréttir.
Blanda er þemað í þessum þætti. Það má blanda ýmsu saman og blöndur er víða að finna í lífi hvers manns. Við fáum áfenga blöndu af humlum og geri á Ísafirði, blöndum krem og smyrsl í Hafnarfirði og svo er það sjálf Blanda sem rennur út í hafið. Allt þetta skoðum við í þessum síðasta þætti vertíðarinnar. Inslög unnu Ágúst Ólafsson, Dagur Gunnarsson og Halla Ólafsdóttir.
Umsjón: Dagur Gunnarsson
Í þætti dagsins fjöllum við um Eiðabrunann 1960, skoðum merkilega ljósmynd á Síldarminjasafninu á Siglufirði og forvitnumst um starfsemi sauðfjárverndarinnar. Þátturinn var áður á dagskrá í Sögum af landi 9. apríl. 2021.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Úrval úr Lestarþáttum vikunnar.
Útvarpsfréttir.
Hljóðritun frá Vínartónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem fram fóru í Eldborgarsal Hörpu s.l. fimmtudag.
Á efnisskrá er óperettutónlist, valsar og polkar eftir Johann Strauss yngri ofl.
Einsöngvarar: Álfheiður Erla Guðmundsdóttir og Jóhann Kristinsson.
Stjórnandi: Keri-Lynn Wilson.
Hljóðritun frá Vínartónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem fram fóru í Eldborgarsal Hörpu síðastliðinn fimmtudag.
Á efnisskrá er óperettutónlist, valsar og polkar eftir Johann Strauss yngri, valsar og polkar eftir Johann Strauss yngri, m.a. Keisaravalsinn og Dónárvalsinn, auk forleiksins að Leðurblökunni.
Einsöngvarar: Dísella Lárusdóttir og Jóhann Kristinsson.
Stjórnandi: Ross Jamie Collins
Kynnir: Elísabet Indra Ragnarsdóttir.
Kvöldfréttir útvarps
Sagt er frá einstaka fólki sem jarðsett er Hólavallagarði, gamla kirkugarðinum við Suðurgötu. Í hverjum þætti er staldrað við tvö leiði og rakin ævi þeirra sem þar hvíla.
Umsjón: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir.
Í þessum þætti er staldrað við leiði Jóns Borgfirðings (1826-1912) og dóttur hans Guðrúnar Borgfjörð (1856-1930).
Umsjón: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir
Veðurstofa Íslands.
Umsjón: Svanhildur Jakobsdóttir.
Fjórir útvarpsþættir um sagnalist á Norðurlöndum í umsjón Þrastar Haraldssonar.
Börnin og krafa þeirra um sögur er einn helsti hvati þess að mannkynið hóf að segja sögur, hélt því áfram og spinnur eflaust söguþráðinn áfram allt á enda veraldar. Sagnalistin er elsta listgrein mannkyns og lifir enn góðu lífi þrátt fyrir háan aldur, tækniframfarir og afþreyingariðnað.
Ingi Hans Jónsson sagnamaður í Grundarfirði rekur söguna allt aftur í samfélög veiðimanna þar sem karlarnir komu heim af veiðum á kvöldin, settust við eldinn og sögðu sögur af viðburðum dagsins. Þarna fór fram fræðsla, upplýsing og skemmtun. Svo fóru menn að slá í hitt og þetta og syngja með, hljóðfærin urðu til og upp úr því var farið að skipa í hlutverk í leikritinu. Og svo var farið að dansa. Þannig er það sagnaþörfin sem er í raun undirrót allra lista.
Í þáttunum er rætt við íslenska og erlenda sagnaþuli og sögukonur, kennara og leikara, fræðimenn og uppistandara. Útkoman úr þessu birtist í fjórum útvarpsþáttum.
Í fyrsta þættinum er velt vöngum yfir uppruna sögunnar, hvernig hún býr til og tengist öðrum listum, hvar Íslendingar lærðu að segja sögur og hvað gerðist áður en Íslendingasögurnar voru skráðar á skinn.
Viðmælendur: Gísli Sigurðsson miðaldafræðingur, Rósa Þorsteinsdóttir þjóðfræðingur og sögumennirnir Sue Hollingsworth frá Bretlandi og Kristin Lyhmann frá Noregi.
Umsjón: Þröstur Haraldsson.
Þættir á vegum háskólanema.
Leiðbeinandi: Ásdís Emilsdóttir Petersen.
Í daglegri umræðu er því gjarnan haldið fram að hollur matur sé dýrari en óhollur. En getur verið að það sé ódýrara að útbúa góðan og hollan mat? Í þættinum er rætt við Steingrím Steingrímsson rekstrartæknifræðing eða „Afa afslátt“ eins og hann kallar sig og Jóhönnu Eyrúnu Torfadóttur næringar- og lýðheilsufræðing, verkefnisstjóra næringar hjá Embætti landlæknis. Þau varpa ljósi á það hvernig gera má góð hagstæð innkaup og halda matarútgjöldum í lágmarki en um leið borða holla og fjölbreytta fæðu.
Þáttagerð: Gunnhildur Sveinsdóttir nemandi í lýðheilsuvísindum.
Leiðbeinandi: Dr. Ásdís Emilsdóttir Petersen.
Frásöguþættir.
Umsjón: Ragnheiður Viggósdóttir.
Þar festa senn ennþá yndi. Vatnsdalur í Húnaþingi.
Lesið úr Vatnsdælu þar sem fjallað er um landnám Ingimundar gamla í Vatnsdal.
Lesið úr Lesbók fyrir börn og unglinga: Um stúlkuna og hrafninn á Skíðastöðum.
Lesin er frásögn af Valgerði í Grímstungu.
Frásögn Ingunnar Jónsdóttur frá Kornsá um Siggu baun.
Lesið úr minningum Ágústs Jónssonar bónda á Hofi, sem Andrés Kristjánsson ritaði.
Lesari: Þórunn Hafstein.
Umsjón: Ragnheiður Vigfúsdóttir.
Frá 1. september 1981.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Umsjón: Kristján Kristjánsson.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Þorvaldur Thoroddsen sem var einn merkasti vísindamaður okkar Íslendinga báðum megin við aldamótin 1900. Umsjónarmaður les úr minningum hans frá skólaárum í Latínuskólanum og fyrstu árunum í Reykjavík. Skemmtilegar lýsingar á skólalífi og höfuðstaðnum á ofanverðri 19. öld.
Umsjón: Illugi Jökulsson.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Ég held að flest okkar átti sig á mikilvægi fiskveiða fyrir Ísland, oft er talað um sjávarútveg sem eina grunnstoð landsins, jafnvel þá grunnstoð sem sá hvað mest um að byggja það upp. Eina stríðið sem ég veit um að Ísland hafi staðið í er Þorskastríðið, sem er kannski gott efni fyrir annan þátt en er góður mælikvarði á hversu mikilvæg þessi grein er fyrir okkur sem þjóð. En þó við heyrum orðið kvóti oft er það kannski ekki alveg skýrt um hvað er verið að tala, ju, þetta er fiskurinn sem viðkomandi aðili má veiða en hvenær var þetta sett upp, af hverju og hvernig hefur þetta breyst? Ég fékk til mín Hörð Sævaldsson lektor við auðlindadeild Háskólans á Akureyri til að fara yfir málið með okkur og útskýra aðeins betur um hvað er verið að tala.
Útvarpsfréttir.
Jón eigrar um akra tónlistarinnar, léttstígur og viljugur með skemmtilega fróðleiksmola í farteskinu.
Íslensk tónlist spilar yfirleitt stórt hlutverk. Þægilegur og laufléttur morgunþáttur í umsjón frumherja Rásar 2.
Umsjón: Jón Ólafsson
Meðal annarra tónlistarflytjenda má nefna: Any Trouble, Soffíu Björg, Elízu Newman og SJS Big Band.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Ýmsir.
Gígja Hólmgeirsdóttir ræddi við Harald Ingólfsson sem var á dögunum útnefndur íþróttaeldhugi ársins fyrir sjálfboðaliðastörf sín fyrir íþróttahreyfinguna.
Útvarpsfréttir.
Rúnar Róberts í huggulegum helgargír og spyr hvernig var helgin og hvernig verður vikan framundan?
Topplagið í Bretlandi á þessum degi 1988 er Always on my mind með Pet shop boys, viðburðir vikunnar framundan skoðaðir sem og hvað er um að vera í sportinu og fylgst með veðri og færð. Eitís plata vikunnar er Bon Jovi með Bon Jovi sem kom út 23. janúar 1984 og Tom Jones átti Nýjan ellismell vikunnar í laginu Talking Reality Television Blues.
Lagalistinn:
Sniglabandið - Í góðu skapi
Chris Rea - The Road to hell
Of monsters and men - This happiness
Pet shop boys - Always on my mind (Topplagið í Bretlandi 1988)
UB40 - Don't break my heart
Karma Brigade - Waiting man
Santana - Winning
Elvis Presley - If I can dream
GDRN - Hvað er ástin?
Eddy Grant - I don't wanna dance
George Michael - Father figure
Frankie goes to Hollywood - Two tribes
Coldplay - Every teardrop is a waterfall
15:00
Geiri Sæm - Froðan
Cock Robin - The promise you made
Rick Springfield - Jessie's girl
Bon Jovi - Runaway (Eitís plata vikunnar)
Bon Jovi - She don't know me (Eitís plata vikunnar)
Bríet, Páll Óskar, Diddú og Aron Can - Búið og bless (Áramótaskaupið 2022)
Terence Trent D'Arby - Delicate
Eurythmics - When tomorrw comes
Emilíana Torrini og The Colorist Orchestra - Mikos
Scritti Politti - The Word girl
Tom Jones - Talking Reality Television Blues (Nýr ellismellur vikunnar)
Spandau Ballet - Gold
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.
Árið 2022 er liðið og aldrei það kemur til baka. Í fyrsta Rokklandsþætti nýs árs rifja ég upp brot úr ýmsum Rokklandsþáttum ársins 2022.
Þeir sem koma við sögu eru:
ABBA
U2
Eivor
Una Torfa
Stína Ágúst
Egill Ólafsson
Herbert Guðmundsson
Árni Matthíasson
Arnar Eggert Thoroddsen
Prins Póló ofl.
Útvarpsfréttir.
Kvöldfréttir útvarps
Heilahristingur er léttur og skemmtilegur spurningaþáttur þar sem tvö lið svara spurningum um allt milli himins og jarðar. Þetta misserið mun nýr gestaspyrill vikunnar sitja með Jóhanni Alfreð um hverja helgi og ákveða þemu þáttarins.
Skammdegið er í hámarki þessa fyrstu daga janúarmánaðar og eflaust margir farnir að telja niður í sumar, sælu og frí á framandi slóðir. Við hendum því í Ferðalagahristing í þætti dagsins. Allar spurningar tengjast ferðalögum, fríum og spennandi áfangastöðum um víða veröld. Gunna Dís situr sem gestaspyrill með Jóhanni Alfreð og liðin tvö sem keppa eru Klandur Vest sem í eru Andri Freyr Viðarsson og Elísabet Inga Sigurðardóttir en þau mæta liði Djúpsins sem mynda þau Kamilla Einarsdóttir og Jakob Birgisson. Meðal þess sem kemur við sögu er sælueyjan Tenerife, íslenskir heimshornaflakkar, íslensk flugfélög og mest sóttu ferðamannastaðir í heimi í keppni sem reyndist æsispennandi.
Fréttastofa RÚV.
Umsjón: Andrea Jónsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Tónlistinn er vinsældalisti Íslands. Listinn er samantekt á mest spiluðu lögunum á útvarpsstöðvunum Bylgjunni, FM957, X-inu 977, Rás 2 og K100, sem og á streymisveitum. Listinn er unninn af Félagi hljómplötuframleiðenda og er á dagskrá Rásar 2 alla sunnudaga.
Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir.
Vinsælustu lögin á Íslandi vikuna 1. - 7. janúar 2023.