Vetrarfrí er framhaldsleikrit í átta þáttum eftir Hildi Knútsdóttur. Vetrarfríið er loksins að byrja. Bergljót hlakkar til að fara í bekkjarpartý og Bragi bróðir hennar ætlar að gista hjá vini sínum. Foreldrarnir stefna á rómantíska sumarbústaðarferð. En allt breytist þegar furðuleg drepsótt brýst út. Eftir það hugsar enginn um neitt annað en að bjarga lífi sínu. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Hljóðvinnsla: Gísli Kjaran Kristjánsson. Leikstjóri: Sigurjón Kjartansson.
Persónur og leikendur:
Bergljót: Gríma Valsdóttir.
Bragi: Óttar Kjerúlf Þorvarðarson.
Birna: Edda Björgvinsdóttir.
Þórbergur: Valur Freyr Einarsson.
Katla: Sólveig Arnarsdóttir.
Hólmfríður: Ólafía Hrönn Jónsdóttir.
Finnbogi: Gunnar Hansson.
Soffía: María Karitas Káradóttir.
Agnar: Guðjón Davíð Karlsson.
Magnea: Arnþrúður Karen Viktorsdóttir.
Sæmi: Lúkas Emil Johansen.
Kona á Básum: Kristín Helga Karlsdóttir.
Tónlist: Úlfur Eldjárn.
Hljóðvinnsla: Gísli Kjaran Kristjánsson.
Leikstjóri: Sigurjón Kjartansson.