![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
![Morgunútvarpið](/spilari/DarkGray_image.png)
Við héldum áfram að skoða áætlanir um vindorkugarða. Fyrirtækið Zephyr hefur tvöfaldað áform sín um byggingu vindorkuvers á Fljótsdalshéraði og ef ítrustu áætlanir næðu fram að ganga myndi þar rísa vindorkuver sem beislað gæti orku á við tvær Búrfellsvirkjanir eða tvo þriðju af því sem Kárahnjúkavirkjun tekur til sín. Við ræddum við Ketil Sigurjónsson framkvæmdastjóra Zephyr.
Hvað ætla landsmenn að gefa ástvinum sínum um jólin? Nú þegar er komin ansi skýr mynd á jólaverslunina enda mörg verið dugleg að nýta sér afsláttardaga vefverslana. Rannsóknarsetur verslunarinnar kortleggur kortaveltuna og jólaverslunina ár hvert og slumpar meðal annars á það hver jólagjöf ársins verður - og við fengum að heyra betur af henni þegar forstöðumaður Rannsóknarsetursins, Sigrún Ösp Sigurjónsdóttir, kom til okkar.
Í gær var fjallað um mál þekkts einstaklings sem leitaði til Persónuverndar og sóttist eftir því að fá eytt upplýsingum um sig sem birtar voru í leitarniðurstöðum í leitarvél Google um meint einelti hans. Það var hins vegar niðurstaða Persónuverndar að með hliðsjón af atvinnu mannsins sem kvartaði til stofnunarinnar og hlutverki hans í þjóðlífinu, þá vegi hagsmunir almennings af því að hafa aðgang að umræddum upplýsingum þyngra en einkalífshagsmunir kvartanda. Við ræddum þetta mál og þær reglur sem gilda um réttinn til að gleymast við Helgu Þórisdóttur, forstjóra Persónuverndar.
Gengi rafmyntarinnar Bitcoin hefur haldist nokkuð stöðugt undanfarnar vikur en það vakti nokkra athygli í gær þegar sérfræðingar Seðlabanka Evrópu líktu myntinni við fjárhættuspil og ítrekuðu að eftirlitsaðilar og fjármálastofnanir ættu ekki að veta henni lögmæti. Við ræddum stöðu og framtíð stafrænna gjaldmiðla og rafmynta við Kristján Inga Mikaelsson, stjórnarformann í Rafmyntaráði Íslands.
Það eru ansi margir fastir liðir eins og venjulega svona í árslok - tilnefningar til bókmenntaverðlaunanna verða tilkynntar í dag, fljótlega hefja fjölmiðlarnir leit að manneskju ársins og svo framvegis - en í dag hefst líka leitin að orði ársins. Hvað skyldi það nú verða? Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur RÚV kíkti til okkar.
Rétt fyrir níu eruð þið, hlustendur góðir, vonandi flest búin með morgunkaffið og farin að huga að næsta drykk - jólabjórnum. Við fórum yfir úrvalið með Laufey Sif Lárusdóttur formanni Samtaka íslenskra handverksbrugghúsa.
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
![Morgunfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
![Morgunverkin](/spilari/DarkGray_image.png)
Morgunverkin er fyrst og fremst tónlistarþáttur þar sem Þórður Helgi spilar bara það besta sem heimurinn hefur alið af sér síðustu 30-40 árin.
Morgunverkin 1. desember 2022
Umsjón: Rúnar Róbertsson
9:00
Magni - Heim
Freyjólfur - Dönsum ein
Hljómar - Er hann birtist
Sykurmolarnir - Ammæli
Baggalútur ásamt Friðriki Dór - Stúfur
Kolrassa Krókríðandi - Móðir mín í kví kví
Maus - Kerfisbundin þrá
Íslandsvinir - Gamalt og gott
Jói Pjé & Valdimar Guðmundsson - Herbergið
Bubbi Morthens - Stúlkan sem starir á hafið
Rikshaw - Same as before
10:00
Björgvin Halldórsson - Himinn og jörð
Ástarpungarnir - Litli trommuleikarinn
Ragnar Bjarnason og Lay low - Þannig týnist tíminn
Aron Can - Fullir vasar
Fjallabræður - Hafið eða fjöllin
Jet black Joe - Let's start this together
Swizz - Garún
Skítamórall - Drakúla
Botnleðja - Þið eruð frábær
Ríó - Þetta reddast
Svala - Þú og ég og jól
Kot - Sól
Ása Elínardóttir - Sólin er sest inní mér
11:00
Elíza Newman - Stjörnuryk
Sigrún Stella - No one's gonna love you
Páll Óskar - Ég er bundinn fastur
Ragnhildur Gísladóttir - Jóla jólasveinn
Nýdönsk - Flugvélar
Súrefni - Disco
Bjarki Hall - Fortíð
Dikta - From now on
Kusk - Lúpínur
Á móti sól - Ef þú ert ein
Stebbi og Eyfi - Jólagleði
Halli Reynis - Ef ég ætti vængi
Blood harmony - Draumasnillingar
12:00
Land og synir - Örmagna
Bubbi og Auður - Tárin falla hægt
Karma Brigade - Alive
Stefanía Svavarsdóttir - Það eru að koma jól
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
![Hádegisfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
Kjaraviðræður þokast áfram en eru á viðkvæmu stigi. Af orðum framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins má ráða að samningar náist næstu daga.
Búast má við þrengslum á Keflavíkurflugvelli á næsta ári. Farþegaspá ISAVIA gerir ráð fyrir hátt í 8 milljónum farþega um flugvöllinn á árinu.
Dvalartími leikskólabarna í Reykjavík verður styttur á næstu vikum. Oddviti Sósíalista í borgarstjórn hefur áhyggjur af foreldrum í erfiðri stöðu.
Sóttvarnayfirvöld í Kína hafa gefið sterklega í skyn að nú sé tímabært að draga úr takmörkunum. Talið er að þetta séu viðbrögð við mótmælum helgarinnar.
Þeir voru fölir og guggnir Reykvíkingarnir sem komu saman að fagna fullveldi við Stjórnarráðshúsið fyrir 104 árum. Háskólasamfélagið fagnar deginum á Bessastöðum í dag.
Óþekktur og alvarlegur sjúkdómur felldi sex hross á Suðurlandi í síðustu viku. Sérgreinadýralæknir lítur málið alvarlegum augum.
Minnst ein starfsstétt verður í verkfalli í Bretlandi á hverjum degi til jóla ef ekki semst. Nú síðast boðuðu sjúkraflutningamenn verkfall.
Brýnt er að boðið verði upp á hraðgreiningapróf fyrir HIV, segir formaður HIV-samtakanna á Íslandi. Hann furðar sig á tregðu heilbrigðisráðuneytis til að heimila notkun prófanna.
Úrslit ráðast í dag í E og F riðlum heimsmeistaramótsins í fótbolta í Katar. Stórlið eiga á hættu að falla úr leik.
![Poppland](/spilari/DarkGray_image.png)
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Í dag fagnaði Siggi Gunnars degi íslenskrar tónlistar ásamt því að minnast á afmæli Rásar 2 sem varð 39 ára í dag.
Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson.
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
![Síðdegisfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
![Síðdegisútvarpið](/spilari/DarkGray_image.png)
Við ætlum að frumflytja lag eftir Svavar Pétur öðru nafni Prins Póló í Síðdegisútvarpinu strax að loknum fimm fréttum. Berglind Hasler ætlar að mæta til okkar vopnuð laginu ásamt stórsöngvaranum Valdimar Guðmundssyni en hann syngur lagið ásamt Prins Póló og Hirðinni. Hirðin tók að sér að klára þetta verkefni eftir að Svavar Pétur lést í lok september en samhliða laginu er Haustpeysa Prins Póló komin í búðir og rennur ágóði peysunnar til Krafts styrktarfélags ungs fólks og í minningarsjóð Prins Póló. Meira um þetta allt saman hér á eftir og auðvitað lagið sjálft Ég er klár.
Félagsfræðingafélag Íslands býður til málþings og móttöku í tilefni af Félagsfræðideginum á morgun föstudag. Að þessu sinni er sjónum beint að brýnum málefnum á alþjóðavettvangi, þ.e. félagslegum afleiðingum styrjalda og ójöfnuði þjóða. Lykilerindi flytur Sigríður Víðis Jónsdóttir sem nýverið gaf út bókina Vegabréf: Íslenskt sem hefur hlotið mikla athygli og lof en Sigríður heimsótti okkur einmitt hér í Síðdegisútvarpið fyrir nokkru síðan. En hvernig tengist félagsfræðin efni bókarinnar - Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands segir okkur allt um það hér rétt á eftir.
Rostungurinn Valli, sem gerði sig heimakominn hér við land í fyrrahaust, og sjávarspendýr við Íslandsstrendur eru í aðalhlutverki í nýrri barnahljóðbók sem var að koma út. Meðal höfunda bókarinnar er Edda Elísabet Magnúsdóttir, sérfræðingur í sjávarspendýrum og lektor við Menntavísindasvið HÍ, en rannsóknir hennar og fleiri vísindamanna á hljóðheimi spendýra hafsins eru m.a. nýttar í bókinni. Edda kemur til okkar á eftir og segir okkur betur frá Valla og ævintýrum hans
Í dag 1. des er dagur reykskynjarans. Við þekkjum öll og vitum hvað reykskynjarinn gerir og fyrir hvað hann stendur en Jón Pétursson slökkviliðsmaður og ráðgjafi Öryggismiðstöðvarinnar veit miklu meira en við og við förum yfir mikilvægi reykskynara og fáum ýmis ráð nú þegar jólin og hátíð ljóssins er framundan.
Og svo er Meme vikunnar á sínum stað með Atla Fannari Bjarkasyni
Samkvæmt fréttum frá ruv í dag hafa rúmlega sjötíu prósent sálfræðinga sem starfa á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins íhugað að segja upp störfum síðustu 6 mánuði. Þetta kemur fram í könnun sem lögð var fyrir sálfræðinga heilsugæslunnar. Mikil óánægja hefur ríkt meðal sálfræðinga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins með skipulagsbreytingar sem ráðist var í fyrr á þessu ári. Gyða Dögg Einarsdóttir er formaður félags sálfræðinga í heilsugæslu og hún er á línunni
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
![Spegillinn](/spilari/DarkGray_image.png)
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Spegillinn 1. desember 2022. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.
Velkomin að Speglinum, umsjón hefur Anna Kristín Jónsdóttir.
Morgundagurinn sker úr um hvort tekst að semja að mati Vilhjálms Birgissonar, formanns Starfsgreinasambandsins. Hægt verði að semja til lengri tíma í haust þegar óvissa verði minni. Ólöf Rún Skúladóttir talaði við hann.
Meirihluti borgarráðs samþykkti í dag sparnaðar og hagræðingaraðgerðir sem eiga að skila rúmlega milljarði króna. Meðal annars á að spara í innkaupum til skóla og stækka og breyta gjaldsvæði bílastæða. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá.
Samfylkingin yrði næst stærsti þingflokkurinn með tuttugu og eitt prósent fylgi og fimmtán þingmenn yrði kosið í dag. Þetta kemur fram í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir.
Ekkert lát er á óöldinni sem ríkir í Íran. Forsetinn hvetur fólk til að bjóða erlendum hvatamönnum mótmæla í landinu byrginn. Oddur Þórðarson sagði frá.
Verðhækkanir á þjónustu sérgreinalækna koma niður á heilbrigðiskerfinu síðar meir að sögn Þuríðar Hörpu Sigurðardóttur formanns Öryrkjabandalags Íslands. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir talaði við hana.
------------
Norðurlandasamstarfið breytist við inngöngu Svía og Finna í atlantshafsbandalagið segja nefndarmenn í utanríkismálanefnd sem nú fjallar um breytingar á þjóðaröryggisstefnu. Þar eru undir brýnni mál en nokkru sinni. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Njál Trausti Friðbertsson (D) og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur (C).
Sameinuðu þjóðirnar fara fram á fimmtíu og einn og hálfan milljarð dollara til að veita á fjórða hundrað milljónum jarðarbúa mannúðaraðstoð á næsta ári. Stærsti hlutinn á að renna til aðstoðar flóttafólki frá Úkraínu. Ásgeir Tómasson tók saman, heyrist í Martin Griffith, framkvæmdastjóri mannúðarmála hjá SÞ og Imogen Foulkes fréttaritari BBC í Genf í Sviss.
![Undiraldan](/spilari/DarkGray_image.png)
Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.
Hún heldur áfram, jólalega jólalagaveislan í Undiröldunni, og þennan fína fimmtudag eru það Helgi Björnsson, Ukulellur, Bjarni Arason, Sycamore Tree, Vala og Stefán, Ástarpungarnir og jólabörnin Jón Jónsson og Friðrik Dór sem skella sér í jólasveinabúninginn.
Lagalistinn
Helgi Björnsson - Gjöf merkt þér
Ukulellur - Þriggja fasa jól
Bjarni Arason - Allt er gott um jólin
Sycamore Tree - Frá mér til þín
Vala og Stefán - Ef ég nenni
Ástarpungarnir - Litli trommuleikarinn
Jón Jónsson og Friðrik Dór - Jólabróðir
![Kvöldvaktin](/spilari/DarkGray_image.png)
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Það er mikið um að vera á degi íslenskrar tónlistar og fullveldisdegi Íslendinga og Kvöldvaktin í lengra lagi vegna dagskrárhagræðinga í tengslum við HM karla í fótbolta. Kraumslistinn þetta árið var tilkynntur fyrr í dag og verður ræddur í síðari hluta þáttar, en við heyrum að auki tónlist frá Kára, KUSK og Óvita, Final Boss Type Zero, Ara Árelíusi, Oyama, Bo Milli og fleirum.
Umsjón: Bjarni Daníel Þorvaldsson
Lagalisti:
Ragnar Bjarnason - Er líða fer að jólum
Kári - Something Better
Elín Hall - Vinir
Sigrún Stella - Circles
Snorri Helgason - Falleg
KUSK, Óvitit - Morgun
Emmsjé Gauti - Klisja
Jónas Sig og Lúðrasveit Þorlákshafnar - Faðir
Taylor Swift, Lana Del Rey - Snow On The Beach
gugusar - Annar séns
Stormzy - Hide & Seek
Rihanna - Lift Me Up
Phoenix, Ezra Koenig - Tonight
Unnsteinn - Andandi
Superserious - Bye Bye Honey
The Go! Team, The Star Feminine Band - Look Away, Look Away
Melby - Hammers
Bo Milli - FOMO
Fucales - Cream
Dry Cleaning - Gary Ashby
sameheads - SD
Blood Orange - Something You Know
Infant Finches - Canvas Oil
Spirit of the Beehive - hypnic jerks
Women - Heat Distraction
Cocteau Twins - Heaven Or Las Vegas
Oyama - Handsome Devil
Slowdive - Souvlaki Space Station
Tiny Cali Girls - Friðarsúludans
Kvikindi - Ungfrú Ísland
Una Torfa - Stundum
Kruklið - Gefðu allt sem þú átt
Guðir hins nýja tíma - Kysstu mig
Stirnir - fucales
Ari Árelíus - Harpa
Ultraflex - Under The Spell
ronja - eel feeding content
Ástþór Örn - Small Man Who Lives In My Walls
Final Boss Type Zero, Xiupill - Sacrifice
Xiupill - ORDA
Cali Cartier - GITIT
Björk - Cocoon
A.G. Cook - Behind Glass
asdfhg. - Malbik
Poly Styrene - Dreaming
Norma Tanega - Solar Winds
![Útvarpsfréttir](/spilari/DarkGray_image.png)
Útvarpsfréttir.
![Konsert](/spilari/DarkGray_image.png)
Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.