![Stella í framboði](/spilari/DarkGray_image.png)
Stella í framboði
Gamanmynd frá 2003 um þau Stellu og Salómon sem við kynntumst fyrst í myndinni Stella í orlofi. Nú reka þau fagurkerafyrirtækið Framkoma.is. Salómon er ráðinn til þess að fegra þorp og umbreyta því. Stella verður eftir í bænum og tekur að sér að kenna stjórnmálamönnum að koma fram, enda kosningar í nánd. Af misskilningi þvælist Stella inn í framboð Centrum-listans, sem berst við höfuðandstæðing sinn, Miðflokkinn, og veit ekki fyrr til en hún er komin á kaf í pólitík. Leikstjóri: Guðný Halldórsdóttir. Aðalhlutverk: Edda Björgvinsdóttir, Þórhallur Sigurðsson, Gísli Rúnar Jónsson og Rúrik Haraldsson.
Myndin er hluti af þemanu Konur í kvikmyndagerð.