Ásgeir - Maðurinn með hattinn
Ný heimildarmynd um Ásgeir Elíasson, einn sigursælasta knattspyrnuþjálfara landsins, sem lést fyrir aldur fram árið 2007. Hann gerði Fram að stórveldi og vann glæsta sigra með íslenska landsliðinu. Samferðamenn hans rifja upp sögu hans, innan sem utan vallar. Rætt er um þjálfun, vináttu, keppnisskap, fjölskyldustemningu og þá sýn að það verði að vera gaman í fótbolta. Umsjón: Logi Bergmann Eiðsson.