Afmælistónleikar Diddú

Seinni hluti

Frumsýnt

27. des. 2015

Aðgengilegt til

20. júlí 2024
Afmælistónleikar Diddú

Afmælistónleikar Diddú

Upptaka frá afmælistónleikum Diddúar sem fram fóru í Hörpu í september 2015 og fer Diddú yfir farsælan feril sinn í tveimur þáttum. Í fyrri hluta syngur hún ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands sígild lög og aríur sem eru henni hjartfólgin. Í síðari hluta vendir hún kvæði sínu í kross ásamt einvalaliði söngfélaga og hljóðfæraleikara. Þar stíga þeir Egill Ólafsson, Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson á stokk með henni sem hið goðsögulega Spilverk þjóðanna. Einnig koma fram þau Ragnhildur Gísladóttir, Páll Óskar Hjálmtýsson og Björgvin Halldórsson. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson.

,