Smástund hentar vel fyrir þau allra yngstu, í hverjum þætti lærum við orð, liti, tölur og tónlist.
Dagskrárgerð: Agnes Wild
Tónlist: Sigrún Harðardóttir
Vandaðir þættir þar sem hugur og skynjun barna eru örvuð á sjónrænan hátt án orða.
Emilía uppgötvar að litli rauði hvolpurinn hennar að nafni Kátur hefur vaxið um þrjá metra á einni nóttu.
Nokkrir kunnulegir og ókunnulegir fiskar kynna sig fyrir áhorfendum.
Lærið um tölustafina með Tölukubbunum!
Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.
Huggulegir þættir þar sem snjómaðurinn les úr sínum uppáhaldsbókum fyrir litlu mýsnar í bókabúðinni.
Vinirnir Begga og Fress leika sér að tölum og leysa saman ýmsar þrautir og gátur.
Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.
Tillý býr í gulu húsi með fimm góðum vinum. Krókódíl, svíni, hænu, fíl og kanínu. Þau sýna og sanna að vináttan er það besta í heimi.
Blæja er sex ára hundur sem er stútfull af óstöðvandi gleði. Allir venjulegir hlutir geta orðið ævintýri hjá Blæju og fjölskyldu hennar.
Kærulausi unglingurinn Don Diego þjálfar sig í skylmingum þar sem hann ætlar sér að takast á við það mikla óréttlætti sem samlandar hans eru beittir af ógnarstjórninnisem þar ræður ríkjum. Hann verður framúrskarandi skylmingamaður og tekursér nafnið sem mjög margir þekkja, Zorro.
Bolli og Bjalla eyða Stundinni okkar úr manna minnum og þurfa að leggjast á eitt til að koma í veg fyrir að hún gleymist að eilífu.
Þau ferðast í gegnum sögu Stundarinnar okkar og hitta þar fyrrverandi þáttastjórnendur, þá Gunna og Felix, Björgvin Franz, Sigyn Blöndal, Flakkarann og fleiri góðkunningja.
Ætli Bolla og Bjöllu takist að bjarga Stundinni okkar fyrir jól eða ætli þau eyði jólunum líka?
Bjalla kynnist Lustelle leikhúsinu hans Bolla, sem enginn áhorfandi hefur fengið að upplifa áður.
Krakkarnir í heimilisfræði ferðast hinum meginn á hnöttinn þar sem þau kynnast Sushi matargerð og við förum í tímaflakk til ársins 2010 þar sem við hittum Dýrmund og Rottó
Beinar útsendingar frá HM í alpagreinum.
Bein útsending frá keppni í bruni kvenna á HM í alpagreinum.
Bein útsending frá spurningakeppni framhaldsskólanna. Spurningahöfundar og dómarar eru Laufey Haraldsdóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Helga Margrét Höskuldsdóttir. Spyrill er Kristjana Arnarsdóttir. Sjórn útsendingar: Sturla Holm Skúlason.
Í þessum þætti mætast lið Verzlunarskóla Íslands og Menntaskólans í Reykjavík.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Vika6 er árlegt kynheilbrigðisátak. Mikilvægt er að börn og unglingar geti rætt við foreldra sína um kynlíf, en hvernig á að hefja þær samræður án þess að það verði vandræðalegt. Kastljós ræddi við foreldra, unglinga og sérfræðinga sem sögðu okkur allt um það hvernig komast má hjá vandræðalegheitum í kringum þetta mikilvæga efni.
Úrslitin í Idol stjörnuleit fara fram í kvöld en tveir þátttakendur standa eftir. Kastljós leit við á æfingu og kynntist þessum verðandi stjörnum, sem bæði eiga óvæntan og fjölbreyttan bakgrunn.
Stuttir hugleiðsluþættir þar sem náttúrulífsmyndum, tónlist og hljóðum er blandað saman á róandi hátt. BBC framleiðir þættina í samvinnu við fyrirtækið Headspace sem sérhæfir sig í hugleiðslu.
Vika 6 er fimm þátta sería þar sem rætt er við skemmtilegt fólk um kynheilbrigði.
Dagskrárgerð: Hafsteinn Vilhelmsson.
Þorsteinn, Embla og allt hitt skemmtilega fólkið sem við spjölluðum við ætla að lýsa fyrir okkur fullnægingu.
Beinar útsendingar frá keppni í HM í skíðaskotfimi.
Bein útsending frá keppni í sprettgöngu karla á HM í skíðaskotfimi.
Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Í sófanum að þessu sinni eru þau Bubbi Morthens, Margrét Erla Maack og Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir.
Berglind Festival fer á stúfana og rannsakar morgunleikfimi.
Hljómsveitin FLOTT flytur lagið Hún ógnar mér.
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Magnea J. Matthíasdóttir er gestur í Kilju vikunnar. Hún var vinsæll og umdeildur höfundur á áttunda áratugnum en hætti svo að gefa út skáldskap fyrr en nú að hún sendir frá sér ljóðabókina Þar sem malbikið endar. Skúli Sigurðsson kemur í sjónvarpssal og segir dálítið frá sjálfum sér en hann fékk nýskeð glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann fyrir spennusöguna Stóri bróðir. Valur Gunnarsson spáir í því sem hefði getað orðið i bókinni Hvað ef - hvað ef til dæmis menn hefðu notað vopnin sem þeir höfðu birgt sig upp af í Hvíta stríðinu í Reykjavík 1921? Loks hittum við breska fjölmiðlamanninn Richard Osman. Hann er frægur í heimalandinu fyrir störf í sjónvarpi en tók upp á því að skrifa léttar glæpasögur sem hafa orðið feikivinsælar ? tvær þeirra hafa komið út á íslensku. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um þrjár bækur: Farsótt eftir Kristínu Svövu, hmmm eftir Lindu Vilhjálmsdóttur og Vanþakkláta flóttamanninn eftir Dina Nayeri.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk jafnt í borg sem sveit og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Sigrún Þuríður Runólfsdóttir og Þórdís Claessen. Dagskrárgerð: Magnús Atli Magnússon, Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson og Elvar Örn Egilsson.
Landinn fer í kynfræðslu á Kleppjárnsreykjum en í grunnskóla Borgarfjarðar er kynfræðsla á námskránni frá því í 1. bekk og upp í 10. Við hittum eina rósabóndann á Norðurlandi, förum í helgarnám í iðngreinum í Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra, heimsækjum Þingvelli í vetrarbúning og æfum skemmtiatriðin fyrir þorrablót Fljótsdælinga
Fjórða þáttaröð um um ekkjuna Louisu Durell sem flyst búferlum með fjölskyldu sína frá Bournemouth til grísku eyjunnar Korfú um miðjan fjórða áratug síðustu aldar. Þættirnir eru byggðir á ævisögu Geralds Durrell. Aðalhlutverk: Keeley Hawes, Milo Parker, Josh O'Connor, Daisy Waterstone og Callum Woodhouse.
Íslenska óperan varð 40 ára á árinu 2020. Að því tilefni lítum við til baka og minnumst góðra stunda.
Fótboltabaráttan heldur áfram og keppast Jamie og félagar um að gera liðið sitt sem sterkast. En með nýjum aðstoðarþjálfara og nýjum liðsmönnum koma ný átök. Bæði á vellinum og utan hans.
Við höldum áfram að kynnast matarmenningu heimsins. Fleiri krakkar fá vini sína í heimsókn og elda fyrir þá mat frá heimalandi sínu.
Þau Ylfa og Máni standa vaktina í eldhúsinu og kenna okkur hvernig á að elda og baka ýmislegt góðgæti.
Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdóttir
Umsjón: Ylfa Blöndal og Hilmar Máni Magnússon.
Ylfa og Máni kenna okkur að baka banamöffins, þar sem hægt er að nýta gamla banana í þess að henda þeim.
Hér er uppskriftin:
250g heilhveiti
100g hrásykur
50g haframjöl
2tsk lyftiduft
1tsk kalinn
½tsk salt
2 egg
3 brúnir vel þroskaðir bananar
1msk hunang
Og smjör til að smyrja á þegar möffinsið er tilbúið.
Aðferð:
Hitið ofnin í 190 gráður
Blandaðu öllum þurrefnum saman í skál
Blandaðu öllum blautefnunum saman í aðra skál
Blandaðu síðan öllu rílega saman með sleif
Settu deifið í form
Bakaðu í 20-25 mínútur við 190° hita.
Valin myndskeið úr Landanum þar sem áhugaverðir staðir eru skoðaðir og merkilegir Íslendingar heimsóttir. Dagskrárgerð: Gísli Einarsson.
Í Babýloníu, í kringum þrjú þúsund fyrir krist, er talið að karlmenn af öllum stéttum hafi naglalakkað sig. Þeir hæst settu notuðu svart naglalakk en þeir lægra settu grænt. Saga naglalakksins er mjög athyglisverð og nær meira en fimm þúsund ár aftur í tímann en fyrstu heimildir eru frá Kína. Umsjón: Gísli Einarsson og Karl Sigtryggsson.
Lottó-útdráttur vikunnar.
Íþróttafréttir.
Grínsketsaþættir þar sem samskipti, íslensk menning, samfélagsmiðlar og allt sem er mannlegt er skoðað í kómísku ljósi. Handrit, aðalhlutverk og leikstjórn er í höndum Kanarí-hópsins, sem samanstendur af nýrri kynslóð grínista sem hafa gert það gott með leiksýningu og sjónvarpssketsum síðustu misseri.
Rómantísk gamanmynd frá 2015 eftir verðlaunaleikstjórann Cameron Crowe. Brian, foringi í bandaríska flughernum, snýr á heimaslóðir á Havaí til að hafa umsjón með leynilegu verkefni. Málin flækjast heldur því ofan á krefjandi vinnu kemur upp togstreita milli gamallar kærustu hans og nýrrar. Aðalhlutverk: Bradley Cooper, Emma Stone, Bill Murray og Rachel McAdams.
Dönsk spennumynd frá 2014 byggð á skáldsögu eftir Jussi Adler-Olsen. Þegar ungir tvíburar eru myrtir beinist grunur að námsmönnum í heimavistarskóla nálægt morðstaðnum. Myndin er sjálfstætt framhald kvikmyndarinnar Konan í búrinu. Leikstjóri: Mikkel Nørgaard. Meðal leikenda eru Nikolaj Lie Kaas, Fares Fares og Pilou Asbæk. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.