Fyrir Poppý kisukló er ekkert verkefni of erfitt og ekkert vandamál óleysanlegt. Ímyndaraflið keyrir ævintýri hennar áfram og það er nóg af þeim hjá Poppý og vinum hennar.
Krúttlegir teiknimyndaþættir um litla hafbúa sem eru saman í bekk og elska að syngja og dansa. Kennarinn þeirra er hress gullfiskur sem kennir þeim ýmislegt um lífið og tilveruna.
Ástsælu Múmínálfarnir sem allir þekkja úr smiðju Tove Janson mæta aftur og lenda í fleiri skemmtilegum ævintýrum.
Hressir teiknimyndaþættir um ævintýri sjóræningjanna í Daufhöfn og Matthildi vinkonu þeirra. Byggðir á samnefndum bókum í þýðingu Braga Valdimars Skúlasonar.
Þáttarbrot með Ævari vísindamanni fyrir krakka á öllum aldri.
Brot úr tónlistarþáttunum Tónatal í umsjón Matthíasar Más Magnússonar.
Jónas Sig flytur lagið Hafið er svart.
Egill Helgason fær til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Þátturinn er í umjón Egils Helgasonar í dag. Til að ræða málefni á vettvangi dagsins mæta þau Bergþór Ólason alþingismaður, Eyþór Arnalds borgarfulltrúi, Jóhann Páll Jóhannsson frambjóðandi, Birgitta Jónsdóttir fyrrverandi alþingismaður. Að því loknu fær Egill til sín Ómar Ragnarsson fréttamann. Þeir tala um jarðhræringarnar á Reykjanesi, rifja upp Kröflueldana og fleira.
Danskir þættir sem fjalla um einmanaleika hjá miðaldra fólki. Í þáttunum er rætt við fjóra einstaklinga sem upplifa sig einmana, þrátt fyrir að allt líti út fyrir að ganga vel hjá þeim út á við. Í þáttunum fara þau hvert sínar leiðir í tilraunum til að brjótast út úr einmanaleikanum.
Þriggja þátta röð þar sem sænski söngvarinn Peter Jöback fer á slóðir átrúnaðargoða sinna, þeirra Franks Sinatra, Edith Piaf og Charles Aznavours í New York, París og Berlín.
Sænsk heimildarþáttaröð í þremur hlutum um streitu og kulnun í starfi hjá ungum konum, en á undanförnum árum hafa kulnunareinkenni aukist hjá ungu fólki og sérstaklega hjá konum.
Danskir þættir þar sem við skoðum merkisdaga í lífi okkar. Í þremur þáttum segja þrjár ólíkar kynslóðir frá brúðkaupinu sínu, fermingunni og skírninni.
Íslensk heimildarmynd eftir Steingrím Dúa Másson um rúntinn sumarið 1999 í þremur bæjum: Akranesi, Keflavík og Blönduósi. Rætt er við fólk á rúntinum og rúntmenningin skoðuð ofan í kjölinn. Framleiðendur: Steingrímur Dúi Másson og Friðrik Þór Friðriksson.
Íslenskir heimildarþættir um ferðalög hjónanna Kristjáns Gíslasonar og Ásdísar Rósu Baldursdóttur. Kristján sem fór hringinn í kringum jörðina á mótorhjóli árið 2014 tekur aftur fram hjólið og í þetta sinn er Ásdís Rósa konan hans með í för.
Þau fóru árið 2018 þvert yfir Bandaríkin, um 18 ríki á fimm vikum og upplifðu stórkostlega náttúru, sögufræga staði og fjölbreytta flóru mannfólksins. Í tilefni þess að íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu vann sér þátttökurétt á heimsmeistaramótinu í Rússlandi árið 2018 fóru þau svo til Moskvu.
Í tilefni af 40 ára brúðkaupsafmæli sínu fóru Kristján Gíslason og Ásdís Rósa Baldursdóttir þvert yfir Bandaríkin, um 18 fylki á fimm vikum. Á ferðalaginu upplifðu þau stórkostlega náttúru, sögufræga staði og fjölbreytta flóru mannfólksins. Á leiðinni tóku þau fjölda ljósmynda, myndbanda og héldu nákvæma dagbók.
Brot úr Tónaflóði Rásar2 um landið sumarið 2020.
Bein útsending frá upplýsingafundi Almannavarna vegna COVID-19.
Sænskir þættir um viðhald og uppbyggingu gamalla húsa þar sem læra má gagnlega tækni og gamalt handverk.
Valin myndskeið úr Landanum þar sem áhugaverðir staðir eru skoðaðir og merkilegir Íslendingar heimsóttir. Dagskrárgerð: Gísli Einarsson og Karl Sigtryggsson.
Hópur kvenna er kominn á Rauðasand til að skoða og skrá plöntur. „Við höfum haft það sem aðalmarkmið að skrá í vanskráða reiti hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. Það er búið að skipta landinu upp í hnitakerfi og reitirnir eru mjög misvel skráðir,“ segir Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor í grasafræði við Háskóla Íslands.
Þetta er í sjöunda sinn sem að hópurinn, sem hefur stundum kallað sig Grasakellur, heldur í ferð sem þessa. „Við förum á fallega staði og gerum vel við okkur í mat og drykk. En við erum samt að vinna, við erum að bæta við þekkingu á flóru Íslands þótt í litlu sé og allt hjálpar þetta til. Þetta er svona frí með smá svona missjón,“ segir Þóra Ellen en flestar konurnar sinna störfum sem að tengjast jurtaríkinu.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Þáttur um lífið í landinu. Landinn ferðast um og hittir fólk sem fæst við margt áhugavert og skemmtilegt. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórgunnur Oddsdóttir Halla Ólafsdóttir og Arnar Björnsson. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson, Magnús Atli Magnússon og Jóhannes Jónsson.
Í þættinum heyrum við sögu Íslenskra bílnúmera, við borðum karfaroð og þefum af þaravíni, við berum undir gönguskíði, rifjum upp sögu Myllu-Kobba og við hittum dýralækni með krafta í kögglum.
Viðmælendur:
Einar Árni Gíslason
Gunnar Garðarsson
Inga Katrín D. Magnúsdóttir
Kristín Þórhallsdóttir
Ólafur Pétur Eyþórsson
Rúnar Sigurjónsson
Þórhildur Elínardóttir
Myndaflokkur frá BBC um innflytjendur af karabískum uppruna í London á áttunda áratugnum. Myndirnar segja sögur mikilla sigra í skugga misréttis og rasisma. Leikstjóri: Steve McQueen. Meðal leikara eru: John Boyega, Sheyi Cole, Shaun Parkes, Letitia Wright, Malachi Kirby og Michael Ward. Myndirnar eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Þroskasaga 12 ára drengs sem er heillaður af geimförum. Hann er kallaður til skólastjóra fyrir að trufla í tíma og þá kemur í ljós að það á að senda hann í skóla fyrir börn með sérþarfir. Foreldrar hans, sem vinna myrkranna á milli, átta sig ekki á aðskilnaðarstefnunni sem leynist í skólanum fyrr en hópur kvenna tekur málin í sínar hendur og berst fyrir rétti svartra barna til menntunar.
Egill Helgason fær til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Þátturinn er í umjón Egils Helgasonar í dag. Til að ræða málefni á vettvangi dagsins mæta þau Bergþór Ólason alþingismaður, Eyþór Arnalds borgarfulltrúi, Jóhann Páll Jóhannsson frambjóðandi, Birgitta Jónsdóttir fyrrverandi alþingismaður. Að því loknu fær Egill til sín Ómar Ragnarsson fréttamann. Þeir tala um jarðhræringarnar á Reykjanesi, rifja upp Kröflueldana og fleira.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.