19:45
Félagarnir fimm (2 af 3)
Fimm í háskalegri lestarferð
Breskar spennumyndir fyrir alla fjölskylduna um ævintýri fjögurra krakka og hundsins þeirra. Myndirnar eru lauslega byggðar á Fimm-bókunum eftir rithöfundinn Enid Blyton. Aðalhlutverk: Diaana Babnicova, Kit Rakusen, Flora Jacoby Richardson og Elliott Rose.
Þegar verðmætri vél í eigu föður Georgs er stolið enda þau Georg, Júlli, Jonni og Anna ásamt hundinum Tomma í ævintýralegri lestarferð alla leið til Skotlands. Leikstjóri: Asim Abbasi.
Er aðgengilegt til 11. september 2025.
Lengd: 1 klst. 27 mín.
Aðgengilegt eingöngu á Íslandi.