Endursýning á Heimavistinni sem var upprunalega á dagskrá í byrjun samkomubanns í lok mars 2020.
Umsjón: Sigyn Blöndal, Sævar Helgi Bragason og Hafsteinn Vilhelmsson. e.
Í dag ætla Sigyn og Haffi að kynna sér alls konar íþróttagreinar; fótbolta trix, smá-skylmingar á jafnvægisslá, glímuna sem er þjóðaríþrótt Íslendinga, sögu Ólympíuleikanna svo eitthvað sé nefnt. Við fáum skilaboð frá Forseta Íslands og Gunnari Helgasyni. Stútfullur þáttur af skemmtilegum fróðleik.
Umsjónarmenn: Sigyn Blöndal og Hafsteinn Vilhelmsson
Sketsaþættir frá 2019 úr smiðju Kanarí-hópsins. Guðmundur Einar, Guðmundur Felixson, Máni Arnarson, Pálmi Freyr Hauksson og Steiney Skúladóttir skrifa þættina. Þau fara einnig með flest hlutverk ásamt Eygló Hilmarsdóttur. Leikstjórn og framleiðsla: Guðmundur Einar.
Valin myndskeið úr Landanum þar sem áhugaverðir staðir eru skoðaðir og merkilegir Íslendingar heimsóttir. Dagskrárgerð: Gísli Einarsson og Karl Sigtryggsson.
„Þetta er að byrja svona í mars og er fram í maí. Þá er áin orðin það heit og kominn það mikill gróður í hana að það er ekki hægt að vera með net eftir það," segir Jón Fornason í Haga I í Aðaldal sem stundar netaveiðar í Laxá á hverju vori. Hér áður fyrr voru þessar vorveiðar heilmikil búbót fyrir bændur í Aðaldal. Nú stunda þær fáir. „Ég er svona að reyna að koma yngri kynslóðinni inn í þetta og það gegnur bara vel," segir Jón.
Brot úr menningarumfjöllun liðinnar viku. Fjallað á snarpan og líflegan hátt um það sem efst er á baugi hverju sinni í menningar- og listalífinu, jafnt með innslögum, fréttaskýringum, gagnrýni, pistlum og umræðu. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson og Halla Oddný Magnúsdóttir.
Margrét Einarsdóttir búningahönnuður hefur lengi sett mark sitt á íslenska kvikmyndagerð og er nú farin að vinna til verðlauna fyrir búninga sína á erlendri grundu.
Heimildarmynd um forsetakjör Vigdísar Finnbogadóttur sumarið 1980. Í myndinni eru sýndar svipmyndir frá kosningabaráttunni, kjöri og embættistöku Vigdísar og þetta örlagaríka ár rifjað upp með henni. Dagskrárgerð: Guðfinnur Sigurvinsson og Ragnar Santos.
Heimspekilegar vangaveltur fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára.
Þriðja serían af vinalega hundinum Sámi og krílunum sem vinna sér inn merki á leikskólanum hans.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
1. Samkomubanni aflétt smám saman 2. Stjarna dansar um svarthol 3. Parkour í Reykjavík
Brot úr menningarumfjöllun liðinnar viku. Fjallað á snarpan og líflegan hátt um það sem efst er á baugi hverju sinni í menningar- og listalífinu, jafnt með innslögum, fréttaskýringum, gagnrýni, pistlum og umræðu. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson og Halla Oddný Magnúsdóttir.
Guðlaug Sóley Höskuldsdóttir, eða Gugusar eins og hún kallar sig, hefur vakið athygli fyrir raftónlist sína þrátt fyrir að vera aðeins 16 ára gömul.
Heimildarmynd sem veitir innsýn í hvernig það er að vera transmanneskja í Finnlandi. Við hittum parið Emil og Oliviu sem langar að eignast barn, en hver ræður því hverjir eiga rétt á að verða foreldrar og hvernig þeir fara að því?