Sjötta þáttaröð Kveiks að hefjast
Fréttaskýringaþátturinn Kveikur hefst á ný í kvöld. Þátturinn verður á dagskrá RÚV annan hvern þriðjudag að loknum fréttum og Kastljósi.
![Sjötta þáttaröð Kveiks að hefjast](/kveikur/content/images/size/w2000/2022/09/2022_Kveikur_Poster_Larett_1920x1080.jpg)
Í fyrsta þættinum verður fjallað um umferðaröryggi á Íslandi og rætt við feðgin sem komust lífs af úr einu versta bílslysi sem hefur orðið á Íslandi, þegar jeppi með sjö manns um borð steyptist fram af brúnni við Núpsvötn milli jóla og nýárs árið 2018. Þrír breskir ferðamenn létust.
Ritstjórn Kveiks er skipuð átta reyndum frétta- og dagskrárgerðarmönnum: Þóru Arnórsdóttur, Arnari Þórissyni, Árna Þór Theodórssyni, Brynju Þorgeirsdóttur, Ingólfi Bjarna Sigfússyni, Ingvari Hauki Guðmundssyni, Jóhanni Bjarna Kolbeinssyni og Tryggva Aðalbjörnssyni.
Hægt er að nálgast alla fyrri þætti Kveiks hér á vefnum.