Sjálfsvinsemd
Hvað er sjálfsvinsemd? Í þessum þætti lærum við um sjálfsvinsemd og hvernig við getum verið okkar eigin besti vinur.
Gleðiverkfæri Gleðiskruddunnar eru þættir sem byggjast á hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði. Í hverjum þætti er eitt gleðiverkfæri kynnt sem hefur þann tilgang að efla sjálfsþekkingu, jákvæðar tilfinningar, auka vellíðan, bjartsýni og von og um leið aðstoða börn og ungmenni að takast á við verkefni og áskoranir daglegs lífs.
Verkefni tengd þættinum má finna á glediskruddan.is
Umsjón: Marit Davíðsdóttir og Yrja Kristinsdóttir.