Það var tónskáldið Þórður Magnússon sem samt jólalag Ríkisútvarpsins árið 2014 við ljóð Stefáns frá Hvítadal.
Það er Graduale Nobili kórinn sem flytur og Jón Stefánsson sem stjórnar. Hér má sjá lagið flutt á jólatónleikum Ríkisútvarpsins sama ár af sömu flytjendum.
Árið 1987 hófst sú hefð hjá Ríkisútvarpinu að fá íslenskt tónskáld til að semja nýtt jólalag fyrir hver jól. Lagið er síðan frumflutt á Rás 1 á jóladag, undir yfirskriftinni Jólalag Ríkisútvarpsins. Mörg verkanna eru löngu orðin hluti af íslenskri jólahefð og Rúv.is telur niður dagana til jóla með einu lagi á dag. Hér má hlusta á þau lög sem á undan hafa komið.