Það var Hafdís Bjarnadóttir sem samdi jólalag Ríkisútvarpsins árið 2013. Hljómeyki flytur lagið og stjórnandi er Marta Guðrún Halldórsdóttir.

Árið 1987 hófst sú hefð hjá Ríkisútvarpinu að fá íslenskt tónskáld til að semja nýtt jólalag fyrir hver jól.  Lagið er síðan frumflutt á Rás 1 á jóladag, undir yfirskriftinni Jólalag Ríkisútvarpsins. Mörg verkanna eru löngu orðin hluti af íslenskri jólahefð og Rúv.is telur niður dagana til jóla með einu lagi á dag. Hér má hlusta á þau lög sem á undan hafa komið.