Jólalag dagsins þegar aðeins þrír dagar eru til jóla er Frábæra bæra, jólalag Ríkisútvarpsins frá árinu 2009.
Lagið samdi Þóra Marteinsdóttir við kvæði Jóns Þorsteinssonar píslarvottar. Það eru Dómkórinn, Þuríður Jónsdóttir og Douglas A. Brotchie sem flytja en Marteinn H. Friðriksson stjórnar.
Árið 1987 hófst sú hefð hjá Ríkisútvarpinu að fá íslenskt tónskáld til að semja nýtt jólalag fyrir hver jól. Lagið er síðan frumflutt á Rás 1 á jóladag, undir yfirskriftinni Jólalag Ríkisútvarpsins. Mörg verkanna eru löngu orðin hluti af íslenskri jólahefð og Rúv.is telur niður dagana til jóla með einu lagi á dag. Hér má hlusta á þau lög sem á undan hafa komið.