Lagið Gaggó Vest innblástur að söngleik í Hagaskóla
Um 140 nemendur í efstu bekkjum Hagaskóla taka þátt í gerð söngleiksins Gaggó ve(r)st. Þetta er í fyrsta sinn sem unglingarnir sjá um allt frá grunni, frá leikmynd og ljósum til handritaskrifa og tónsmíða.
„Það er um vinahóp í 10. bekk í Hagaskóla sem er að rannsaka mál sem gerðist fyrir rúmum 30 árum og á meðan við erum að horfa á þennan hóp af fólki reyna að leysa málið sjáum við í rauninni hvað gerðist í fortíðinni. Þannig að við erum alltaf að flakka milli nútíðar og fortíðar,“ segir Brynhildur Anna Sigurðardóttir, ein handritshöfundanna.
Fimmtíu krakkar eru í leikhópnum, og þau bæði syngja og dansa, og á þriðja tug eru í hljómsveitinni. Settar voru upp átta sýningar og var uppselt á þær allar. Frumsýning var á mánudag og í dag var sú síðasta.