Stuttmyndin O (Hringur) var valin besta myndin af áhorfendum á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Tampere í Frakklandi um helgina. Þetta eru fjórðu alþjóðlegu verðlaun myndarinnar sem var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í haust og er komin í forval Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2025.
Ingvar E. Sigurðsson fer með aðalhlutverkið en myndinni er leikstýrt af Rúnari Rúnarssyni og framleidd af Heather Millard.