16-liða úrslit Gettu betur hefjast í kvöld
Fyrsta keppniskvöld í seinni undanúrslitum Gettu betur 2025 er í kvöld og átta skólar mætast.
Viðureignir kvöldsins:
- Þáttur 1 - 19:20: Verzlunarskóli Íslands mætir Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
- Þáttur 2 - 20:00: Fjölbrautaskóli Suðurlands mætir Fjölbrautaskólanum við Ármúla
- Þáttur 3 - 20:40: Kvennaskólinn í Reykjavík mætir Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
- Þáttur 4 - 21:20: Menntaskólinn á Egilsstöðum mætir Verkmenntaskólanum á Akureyri
Dómarar og spurningahöfundar í ár eru Helga Margrét Höskuldsdóttir, Sigurlaugur Ingólfsson og Vilhjálmur B. Bragason líkt og í fyrra. Spyrill er Kristinn Óli Haraldsson.