Fyrsta umferð Gettu betur heldur áfram
Annað keppniskvöld fyrstu umferðar Gettu betur 2025 er í kvöld og átta skólar keppa:
- Menntaskólinn við Sund mætir Menntaskólanum í Kópavogi
- Menntaskólinn í Ísafirði mætir Menntaskólanum að Laugarvatni
- Fjölbrautarskóli Suðurlands mætir Framhaldsskólanum á Laugum
- Fjölbrautarskóli Norðurlands Vestra mætir Menntaskólanum á Egilsstöðum
25 eru skólar skráðir til leiks í Gettu betur. Menntaskólinn við Hamrahlíð bar sigur úr býtum í fyrra og situr hjá í fyrstu umferð. 24 skólar mætast því í 12 keppnum þar sem 12 skólar fara áfram. Þrjú af stigahæstu tapliðunum komast áfram í seinni undankeppnina sem verður á Rás 2 og RÚV.is.
Dómarar og spurningahöfundar í ár eru Helga Margrét Höskuldsdóttir, Sigurlaugur Ingólfsson og Vilhjálmur B. Bragason líkt og í fyrra. Spyrill er Kristinn Óli Haraldsson.