Athugið að þessi frétt er meira en 3 mánaða gömul

Fyrsta kvöld fyrstu umferðar Gettu betur í kvöld

Júlía Aradóttir

,

Þessum viðburði er lokið og því hefur streymið verið fjarlægt.

Fyrsta keppniskvöld fyrstu umferðar Gettu betur 2025 er í kvöld og átta skólar keppa:

  • Verzlunarskóli Íslands mætir Tækniskólanum
  • Menntaskólinn í Reykjavík mætir Fjölbrautaskólanum við Ármúla
  • Fjölbrautaskólinn í Breiðholti mætir Fjölbrautaskóla Suðurnesja
  • Verkmenntaskóli Austurlands mætir Verkmenntaskólanum á Akureyri

Að þessu sinni eru 25 skólar skráðir til leiks í Gettu betur. Menntaskólinn við Hamrahlíð bar sigur úr býtum í fyrra og situr hjá í fyrstu umferð. 24 skólar mætast því í 12 keppnum þar sem 12 skólar fara áfram. Þrjú af stigahæstu tapliðunum komast áfram í seinni undankeppnina sem verður á Rás 2 og RÚV.is.

Dómarar og spurningahöfundar í ár eru Helga Margrét Höskuldsdóttir, Sigurlaugur Ingólfsson og Vilhjálmur B. Bragason líkt og í fyrra. Spyrill er Kristinn Óli Haraldsson.