Írena Rut er Jólastjarnan 2023

Anna María Björnsdóttir

Jólastjarnan 2023 er hin fjórtán ára Írena Rut Jónsdóttir sem söng sig inn í hjörtu þjóðarinnar með laginu Ó helga nótt. Undanfarnar tvær vikur hafa áhorfendur fengið að kynnast þeim tíu börnum sem komust áfram í lokahópinn af 150 umsækjendum.

Írena Rut er frá Dalvík og segist hafa byrjað að syngja áður en hún lærði að tala. Hún er búin að vera í söngnámi frá því hún var fimm ára gömul og lærir nú við Tónlistarskólann á Tröllaskaga. „Þegar ég er á sviðinu er ég alveg örugg með mig af því að ég er orðin svolítið vön því,“ segir Írena Rut sem er þó alltaf örlítið stressuð áður en hún kemur fram. „Svo einhvern veginn fer það þegar ég er komin upp á svið og byrja að syngja.“

Geislaði af henni á sviðinu

Dómarar voru tónlistarfólkið Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir og Logi Pedro Stefánsson og tónlistarstjóri Rásar 2, Sigurður Þorri Gunnarsson. Kynnar voru Katla Þórudóttir Njálsdóttir og Kristinn Óli S. Haraldsson.

Írena flutti lögin Ó helga nótt og Vetrarsól með glæsibrag og leið dómurum eins og þeir væru að horfa á stórstjörnu þegar hún kom fram. „Þegar maður lokaði augunum var eins og maður væri mættur á stórtónleika hjá einhverri dívu,“ sagði Logi Pedro. „Hún kom og það geislaði af henni,“ sagði Sigurður Þorri. „Þetta var líka tæknilega ótrúlega vel gert,“ bætti Guðrún Ýr við.

„Eitt sem er svo merkilegt, því hún er náttúrulega svo ung, en mér fannst ég trúa hverju orði. Sérstaklega í Vetrarsól. Það er þroski í röddinni og flutningnum,“ sagði Sigurður Þorri.

Flutningur Írenu Rutar á laginu Vetrarsól.
Flutningur Írenu Rutar á laginu Ó helga nótt.

Þátttakendur Jólastjörnunnar voru í stífum dans- og söngæfingum og tóku meðal annars upp skemmtilega ábreiðu á laginu Jólin eru að koma eftir Einar Örn Jónsson. Ingvar Alfreðsson útsetti lagið og sá einnig um upptöku þess. Sú útgáfa varð þemalag þáttarins.

Þátttakendur í Jólastjörnunni koma fram á tónleikunum Jólagestir Björgvins 16. desember.

Lokaþáttinn af Jólastjörnunni er hægt að nálgast hér í spilara RÚV.