25. mars 2025 kl. 18:56
Íþróttir
Íþróttir

Eygló Fanndal tilnefnd lyftingarkona ársins

Eygló Fanndal Sturludóttir var í dag tilnefnd sem lyftingakona ársins 2024 af Evrópska lyftingasambandinu.

Eygló Fanndal lyftingakona á úrtökumóti í Taílandi fyrir Ólympíuleikana 2024
RÚV

Eygló á að baki stórkostlegt ár. Hún varð Evrópumeistari ungmenna og hlaut þar hæstu stig þvert á alla þyngdarflokka. Auk þess setti hún Norðurlandamet í fullorðinsflokki og tryggði sér Norðurlandameistaratitilinn í -71 kg flokki.

Á heimsmeistaramótinu í ólympískum lyftingum náði hún fjórða sæti í -71 kg flokki. Næst mun hún keppa á Evrópumeistaramótinu í Moldóvu í apríl.