Fram er komið í annað sæti Olísdeildar kvenna í handbolta þegar einungis tvær umferðir eru eftir af tímabilinu. ÍR og Fram áttust við í nítjándu umferð deildarinnar. Fram vann þar öruggan sigur 22-25. Fram situr í öðru sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Val sem er í því fyrsta.
Þórey Rósa Stefánsdóttir var markahæst Fram með sjö mörk.RÚV / Mummi Lú
Fram hafði yfirhöndina allan leikinn en næst komust Breiðhyltingar þegar liðið jafnaði metin í fyrri hálfleik í 8-8. Þá litu Framarar ekki um öxl og héldu fimm til sex marka forystu fram að 55. mínútu. Þá gerði ÍR áhlaup sem dugði þó ekki til. Lokatölur urðu 22-25, fyrir Fram.