Flugbrautin opin en mikil vinna eftir í Öskjuhlíð
Tilskipun Samgöngustofu um lokun austur-vestur flugbrautarinnar á Reykjavíkurflugvelli hefur verið felld úr gildi. Háu trén sem ógnuðu flugöryggi hafa verið höggvin.
Aðfaranótt 8. febrúar var austur-vestur flugbrautinni lokað að kröfu Samgöngustofu til þess að tryggja flugöryggi. Aðflugs- og flugtakshornið á flugbrautinni var talið hættulegt. Samgöngustofa hefur fellt bannið úr gildi og er flugbrautin því opin á ný.
Trjábolirnir verða fluttir á brott. Þá er töluverð vinna eftir því enn er sægur eftir af trjágreinum úti um allt. Stórar og smáar vinnuvélar eru notaðar til að safna þeim saman svo þær nýtist í eitthvað skynsamlegt.