Forystukonur ríkisstjórnarinnar þráspurðar um aðkomu sína að afsögn ráðherra
Forsætisráðherra var sökuð um athafnaleysi og trúnaðarbrot á Alþingi í dag. Þingmenn stjórnarandstöðunnar kröfðu forsætisráðherra og utanríkisráðherra svara um aðkomu þeirra að afsögn fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar kröfðu forsætisráðherra og utanríkisráðherra svara á Alþingi í dag um aðkomu þeirra að afsögn Ásthildar Lóu Þórsdóttur. Forsætisráðherra var sökuð um trúnaðarbrot og fyrir að draga lappirnar í málinu.
Það var einkum þrennt sem þingmenn spurðu um. Í fyrsta lagi af hverju forsætisráðuneytið brást ekki fyrr við málinu, af hverju trúnaðar hafi ekki verið gætt og hvort forystukonur ríkisstjórnarinnar hafi beitt Ásthildi þrýstingi um að segja af sér.
Forsætisráðherra svaraði því til að afgreiðsla ráðuneytisins á fundarbeiðni um Ásthildi Lóu hefði ekki tekið langan tíma, fjóra virka daga, og hafnaði enn fremur öllum ásökunum um trúnaðarbrot.
Málið gæti endað á borði stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Nefndin fundaði í morgun en málið var ekki rætt á þeim fundi.