22. mars 2025 kl. 9:41
Innlendar fréttir
Höfuðborgarsvæðið

Leitað við Sundin

Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur sveimað yfir Reykjavík í morgun. Þyrlan hefur flogið lágt yfir Borgartúni og nágrenni.

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni fékk Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hana til að aðstoða við leit að manneskju. Grunur leikur á að maður hafi farið í sjóinn.

Björgunarsveitir og björgunarskip taka þátt í leitinni.

Fréttin hefur verið uppfærð.

Þyrla Landhelgisgæslunnar á lágflugi yfir Borgartúni og nágrenni í Reykjavík.
RÚV / Brynjólfur Þór Guðmundsson