Viðvörunarbjöllur farnar að hringja í ferðaþjónustunni vegna tollastríðs
Áhrifa tollastríðs Bandaríkjastjórnar er víða farið að gæta. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir viðbúið að hér á landi fari ferðaþjónusta ekki varhluta af þeim.
„Við vitum að bandaríski markaðurinn er viðkvæmur fyrir því þegar markaðirnir fara niður á við og fólk er „sensitíft“ fyrir því að halda að sér höndum. Við sjáum flugfélög í Bandaríkjunum vera að draga saman tekjuspár sínar vegna þess að ferðalög verða líklega minni á árinu en búist var við. Þannig að það má búast við því að það verði áhrif hér eins og annars staðar.“