Athugið að þessi frétt er meira en 1 árs gömul

Djúp sprunga undir íþróttahúsinu í Grindavík

Alexander Kristjánsson

,

Djúp sprunga liggur undir gervigrasvellinum í íþróttahúsinu í Grindavík. Sprungan kom í ljós í dag þegar viðbragðsaðilar flettu gervigrasinu af. Sprungan er talin minnst tíu metra djúp.

Fyllsta öryggis var gætt á meðan sérfræðingar skoðuðu verksummerkin. Enginn fékk að fara nálægt sprungunni nema vera með sérstakan öryggisbúnað.

Starfsmenn frá verktakafyrirtækinu Sigmönnum unnu að því að rífa gervigrasið af vellinum. Sérfræðingar segja að hún hafi stækkað í jarðhræringunum í kringum eldgosið í janúar.