Sveitarstjórn Hvalfjarðarveitar hvetur Svandísi til að endurskoða ákvörðun sína
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún lýsir yfir vonbrigðum með ákvörðun um stöðvun hvalveiða. Sveitarstjórnin harmar hversu seint ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra, um tímabundna stöðvun hvalveiða er framkomin.
Ákvörðun Svandísar kom einungis sólarhring áður en hvalveiðar áttu að hefjast og starfsfólk var þegar mætt til vinnu.
Áhrifin sem þessi fyrirvaralausa og óvænta ákvörðun hefur á samfélagið í Hvalfjarðarsveit og nágrenni, íbúa og atvinnulíf, eru fjárhagslega mikil, bæði bein og óbein.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar tekur ekki afstöðu til hvalveiða með þessari yfirlýsingu en hvetur matvælaráðherra til að endurskoða ákvörðun sína.
Verkalýðsfélag Akraness hefur boðað til opins fundar í kvöld um ákvörðun ráðherra um bann við veiðum og vinnslu hvalveiða.