Eliza Reid, forsetafrú, segir mikilvægt fyrir Íslendinga að raddir þeirra sem hafa ekki fullkomið vald á tungumálinu heyrist. Innflytjendur hafi margt áríðandi að segja þó þeir tali ekki kórrétta íslensku.
Hefur fjallað mikið um jafnrétti
Eliza Reid flutti til Íslands árið 2003 ásamt verðandi eiginmanni sínum Guðna Th. Jóhannessyni. Eliza er kanadísk, en hún og Guðni kynntust í sagnfræðinámi í Oxford á Englandi. Eliza vann sem sjálfstætt starfandi blaðamaður, ritstjóri og rithöfundur eftir að hún kom til Íslands og hefur látið vel að sér kveða meðal annars í umræðu um jafnréttis- og innflytjendamál.
Allt í einu orðin maki þjóðhöfðingjans
Árið 2016 var Guðni kjörinn forseti Íslands og svo endurkjörinn 2020. Eliza komst þá í þá stöðu að vera orðinn maki þjóðhöfðingja, hlutverk sem er kannski ekki ýkja vel skilgreint á Íslandi. Spegillinn ræddi við Elizu Reid um 19 ára dvöl hennar hér á landi. Hún segir viðbrigðin við að flytja til Íslands hafi verið töluverð.
Enn þá venjuleg kanadísk og íslensk kona
„Ég er enn þá þessi venjulega kanadíska kona sem flutti hingað 2003, og íslenska konan líka. Það er auðvitað skrítin tilfinning að vera allt í einu þjóðþekkt sem maki einhvers. Og það kannski einkennir mig sem einstakling fyrst og fremst þó að ég muni aldrei útskýra mig sjálfa þannig.
En að sjálfsögðu er ég mjög stolt af því að vera maki hans Guðna. En þessi staða hefur alltaf verið mikil forréttindi, mikill heiður og mér finnst þetta svo skemmtilegt".
Vildi gera gagn
„Frá byrjun hefur mig alltaf langað til að gera eitthvert gagn. Ég er ekki manneskja sem vill brjóta reglur og fara mikið út fyrir þægindarammann. Jafnréttismálin eru mér mjög kær, en ég hugsaði að ég gæti ekki talað um þau. Ég væri komin í þessa stöðu bara vegna þess að maðurinn minn var kjörinn í embætti. En svo hugsaði ég að maður veit aldrei í lífinu hvenær örlögin gefa þér tækifæri til að gera eitthvað".
Erum öll fyrirmyndir
„Og það er okkar að velja hvort við viljum gera eitthvað með þetta eða ekki. Við erum öll fyrirmyndir og við þurfum að velja hvort við viljum vera jákvæðar eða neikvæðar fyrirmyndir. Ég ákvað að nýta röddina mína, röddina sem talar með hreim líka. Það er mjög mikilvægt á Íslandi að fólk heyri að þó maður geri einhverja vitleysu í tungumálinu að þá hafi maður eitthvað mikilvægt að segja".
Hef lært mikið og er bjartsýn
„Ég held og ég vona að ég hafi ekki breyst neitt sem einstaklingur þó að ég sinni nú því hlutverki að vera forsetafrú. En ég hef lært mikið, skemmt mér, hitt allskonar fólk og ef eitthvað er þá er ég bjartsýnni fyrir heiminn og Ísland eftir þau tækifæri sem ég hef fengið síðustu tæp sjö ár".
Lengra og ítarlegra viðtal við Elizu Reid má hlusta á í spilaranum hér að ofan