1. febrúar 2025 kl. 4:10
Erlendar fréttir
Ástralía

Lögmaður til rannsóknar vegna uppspuna ChatGPT

Lögmaður í Ástralíu er til rannsóknar eftir að upp komst um notkun hans á gervigreind við gerð málsgagna. Hann er sagður hafa notað forritið ChatGPT til að búa til texta í málsgögnum sem hann skilaði til dómstóla.

Uppátækið uppgötvaðist þegar vísað var í málsgögnum hans til mála sem fundust hvergi á málaskrá dómstóla og reyndust vera uppspuni frá ChatGPT.

Lögmaðurinn sagði villurnar vera óviljaverk en viðurkenndi að hafa nýtt þjónustu gervigreindar við gerð málsgagna því hann hefði verið í tímaþröng og þjáðist af heilsufarsvandamálum. Hann hefði ekki farið nægilega vel yfir gögnin og því ekki tekist að leiðrétta villur sem þar komu fram.