18. júní 2024 kl. 9:52
Erlendar fréttir
Taíland

Samkynja hjónabönd lögleidd í Taílandi

Taíland varð í dag fyrsta ríkið í Suðaustur-Asíu til að heimila samkynja hjónabönd. Öldungadeild taílenska þingsins samþykkti lagafrumvarp þess efnis með 130 atkvæðum gegn fjórum. Átján sátu hjá. Samkynja hjónabönd eru aðeins heimil í tveimur Asíuríkjum, Taívan og Nepal.

Mikill stuðningur er við lagabreytinguna meðal almennings. Taíland hefur jafnan haft orð á sér fyrir frjálslynd viðhorf í garð hinsegin fólks. Lögin taka ekki gildi fyrr en 120 dögum eftir að konungur landsins hefur undirritað þau.

Stuðningmenn samkynja hjónabanda í Taílandi.
AP / Sakchai Lalit