58 hafa greinst smitaðir með COVID-19 kórónuveiruna hérlendis, langflest fólk sem var á skíðaferðalagi á Norður-Ítalíu og Austurríki og fólk sem hefur átt í samskiptum við þessa hópa. Víðir Reynsson, yfirlögregluþjónn og talsmaður almannavarna, segir að stór stöðufundur verði haldinn á tíunda tímanum í dag.

Stýrihópur ríkislögreglustjóra, sóttvarnalæknis og landlæknis hittist klukkan átta. Þar er farið yfir hættumat og áherslur dagsins. „Síðan erum við stóran stöðufund með mörgum aðilum, aðilum um allt land í fjarfundi, milli níu og tíu,“ sagði Víðir í Morgunútvarpinu á Rás 2.

„Síðan eru samráðsfundir með ýmsum aðilum. Ég er til dæmis að fara að hitta fulltrúa ÍSÍ og stærstu sérsambandanna þar. Þau eru að sýna mikla ábyrgð og vilja vanda samskipti við allt sitt fólk. Það er mikið af fólki í íþróttunum og þau vilja vera með sitt alveg á hreinu, hvernig þau eiga að vinna þetta næstu dagana og vikurnar.“