Vegmerkingar við Vaðlaheiðargöng, eða skortur á þeim, hafa sætt nokkurri gagnrýni en við göngin kemur hvergi fram að önnur, gjaldfrjáls leið sé í boði. Fulltrúi Vegagerðarinnar segir að skiltunum verði breytt en Vaðlaheiðargöng hafi átt að leysa Víkurskarð af hólmi og meginreglan sé sú að vísa á stystu og öruggustu leiðina. 

Þegar fólk kemur akandi frá Akureyri kemur það að hringtorgi þar sem það getur valið um að aka veg til Húsavíkur og Egilsstaða í gegnum göngin eða veg til Grenivíkur og Svalbarðsstrandar. Við seinni beygjuna kemur hins vegar hvergi fram að sú leið leiði fólk líka austur á land, um gjaldfrjálsan veg. Gjaldfrjálsa leiðin er heldur ekki sýnd þegar ekið er að austan.

Ný skilti verða sett upp

Málið hefur verið í skoðun hjá Vegagerðinni og eftir að fréttastofa grennslaðist fyrir um það í gær var fundað og endanleg ákvörðun tekin um að breyta merkingunum. Í sumar verða því sett upp skilti beggja vegna ganganna þar sem gjaldfrjálsa leiðin verður sýnd. Einar Pálsson hjá Vegagerðinni segir að skiltin séu hugsuð þannig að auðvelt verði að breyta þeim og fjarlægja upplýsingar um leiðina um Víkurskarð ef þörf þykir í vetur. Ekki hafi verið ákveðið hver vetrarþjónusta fyrir skarðið verði en það geti oft reynst varasamur farartálmi á veturna. Meginreglan sé sú að vísa á stystu og öruggustu leiðina þótt til séu dæmi um sumarmerkingar. Í undantekningartilvikum sé vísað á tvær leiðir.

Klári skráningu fyrir ferðalagið

Valgeir Bergmann framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga segir að til að byrja með hafi það verið Íslendingar sem hafi hringt og leitað aðstoðar við skráningu í kerfið en flest símtöl núorðið komi frá erlendum ferðamönnum. Þá séu helstu ábendingar frá þeim að það vanti svæði við göngin til að leggja bílum svo hægt sé að kynna sér greiðslumerkingar betur. Nú sé verið að vinna á því bót og svæði Eyjafjarðarmegin nálægt því að vera tilbúið. Svæði Fnjóskadalsmegin verði tilbúið seinna í sumar. Valgeir segir að slíkt eigi þó ekki að þurfa þar sem mælst sé til að fólk undirbúi ferðalagið og klári skráningu í göngin áður en það leggur af stað. Þótt Íslendingar læri smám saman á kerfið komi alltaf nýir ferðamenn og það þurfi sameiginlegt átak hjá bílaleigum og ferðaþjónustufyrirtækjum í að upplýsa ferðamenn um göngin. 

Göngin vanti á helstu kort

Hann segir að erlendir ferðamenn lesi minna á skilti en Íslendingar. Þeir horfi á kort og vegnúmer og göngin vanti inn á flest þau vegkort sem séu í boði. Fólk fari ekki inn í veggöng sem það viti ekki hvar endi. Þá sé algengt að erlendir ferðamenn séu ekki með uppfærð kort í leiðsögutækjum, þeir snúi því við við gangamunnann þegar tækið segi þeim að þeir séu farnir af réttri leið. Það taki tíma að koma göngunum inn í öll helstu tæki og kort og að breyta ferðabæklingum.