„Það eru engin skrauthvörf, það er ekki verið að búa til neitt eða sykurhúða neitt. Heldur rennur frásögnin bara hreint til lesandans, tært og átakalítið og [textinn] verður mjög fallegur,“ segir Ingunn Ásdísardóttir þýðandi um Lífsspeki kúa sem er Bók vikunnar á Rás 1. Breskir gagnrýnendur hafa kallað hana sígilt verk og meðal við streitu.

Lífsspeki kúa, eða The secret life of Cows, eftir hina bresku Rosamund Young er bók vikunnar á Rás 1 sunnudaginn 8. desember. Höfundur er bóndi sem ákvað, eftir að hafa setið með blaðamanni og rætt um bústörfin á lífræna býlinu sem hún tók við af foreldrum sínum, að tími væri komin til að setjast niður og skrásetja sögurnar af kúnum sem hún ræktar. Þar rekur hún sögu kúnna á bænum Kite's Nest nærri Oxford. Í bókinni dregur Young upp mynd af hegðun kúnna, sem eru jafn mismunandi og manneskjur. Þær eru bráðgáfaðar, tregar, vingjarnlegar, tillitssamar, frekar, feimnar og svo framvegis. Hún þekkir hverja einustu skepni með nafni, kann ættartölur þeirra og þekkir langanir þeirra og þrár.

Útgáfusaga Lífsspeki kúa er merkileg því Young skrifaði bókina árið 2003 og fékk hana gefna út sem hálfgerðan bækling af litlu landbúnaðarforlagi í Englandi, sem eins konar varnarræðu fyrir beljurnar og fyrir búskap þar sem dýrin fengju gott atlæti. Árið 2006  skrifaði hinn þekkti breski höfundur Allan Bennett um Lífsspeki kúa í dagbók sína sem hann birti á internetinu og sagði að bókin „hreinlega breytti sýn hans á heiminn.“

Gestir í Bók vikunnar á sunnudag verða Harpa Rún Kristjánsdóttir, bókmenntafræðingur og bóndi & Jón Ásgeir Kalmansson, heimspekingur. Heyra má viðtal við Ingunni Ásdísardóttur í spilaranum hér að ofan.