Bikarúrslitaleikir yngri flokkanna í handbolta voru leiknir í Laugardalshöll um helgina við sömu umgjörð og meistaraflokkarnir gerðu á laugardag. Leikmenn 3. flokks karla hjá ÍBV báru sig heldur óvenjulega að þegar íslenski þjóðsöngurinn var leikinn fyrir úrslitaleik liðsins gegn Val.

Hver leikmaður ÍBV greip með hægri hönd sinni um pung samherja síns meðan þeir sungu þjóðsönginn. Stefán Árnason, þjálfari liðsins sagði í samtali við RÚV að hann hafi ekki vitað af þessu uppátæki strákanna. Einhver þeirra hafi fengið skyndihugmynd um að bera sig svona að þegar söngurinn var spilaður.

Sjón er sögu ríkari en myndatökumaður RÚV var á staðnum og má sjá myndskeið af þjóðsöngnum í spilaranum hér að ofan.

Hvað úrslit leiksins varðar þá höfðu Valsmenn betur 32-22 og fögnuðu bikarmeistaratitlinum.