Björk Þorgrímsdóttir, skáld, hlaut í dag Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóðið Augasteinn en afhending fór fram við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi í kvöld.
Alls bárust tvö hundruð þrjátíu og tvö ljóð í keppnina sem var haldin í átjánda sinn. Freyja Þórsdóttir var í öðru sæti og Elísabet Kristín Jökulsdóttir í því þriðja.
Einnig voru afhent verðlaun í grunnskólakeppni en þar var Ingimar Örn Hammer Haraldsson nemandi í sjöunda bekk Álfhólsskóla hlutskarpastur fyrir ljóðið Svarthol.